Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fólki úr Grindavík sem afsalaði sér á sínum tíma húsum sínum til Þórkötlu – fasteignafélags gefst frá og með 28. maí næstkomandi kostur á að dvelja þar til lengri tíma, samkvæmt drögum að samkomulagi sem fyrir liggur. Sem kunnugt er leysti Þórkatla til sín og keypti upp nánast öll íbúðarhús í Grindavík á síðasta ári, það er í kjölfar þess að bærinn var rýmdur vegna hættuástands sem lýst var yfir 10. nóvember 2023.
Fólk úr Grindavík, sem sest hefur að annars staðar á landinu, hefur sótt á Þórkötlu um að geta aftur komið í húsin sem það varð að yfirgefa. Slíkt hefur verið heimilt; það er að dveljast á staðnum frá morgni til kvölds. Nú verða reglur hins vegar rýmkaðar; sólarhringsdvöl verður leyfileg og gildir sú heimild út septembermánuð næstkomandi.
„Að þetta verði heimilt er mikilvægur áfangi til endurreisnar bæjarins okkar,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður Járngerðar, hagsmunasamtaka uppbyggingar og framtíðar Grindavíkur. „Nokkuð er um liðið síðan dagdvöl í húsunum hér í bænum var heimil og nú er skrefið stigið lengra. Nú getur fólk leigt gömlu húsin sín fyrir mjög hóflegt verð; mátað sig við að búa aftur í bænum sem vissulega er gjöbreyttur frá því sem var. Við í Járngerði höfum mjög þrýst á um að þetta verði heimilt.“
Margir vilja snúa aftur
Þegar Grindavík var rýmd bjuggu þar um 3.800 manns. Fólk úr bænum hefur sett sig niður víða, margir til dæmis í Reykjanesbæ, Vogum, á Álftanesi, Smáranum í Kópavogi, Þorlákshöfn og Selfossi svo einhverjir staðir séu nefndir. Nýleg könnun sem gerð var fyrir Þórkötlu, og Guðbjörg Eyjólfsdóttir vísar til, segir að 40% þeirra sem í Grindavík bjuggu forðum vilji snúa aftur á fyrri slóðir.
„Hve margir vilja koma aftur heim eru mjög jákvæð skilaboð,“ segir Guðbjörg. Fyrir liggur að ástand húsa í bænum er mjög misjafnt: byggingar austan Víkurbrautar og efst í bænum eru verst farnar. Við götuna Efrahóp eru skemmd hús nærri jaðri hrauns sem rann þar yfir.
„Sunnar og vestar í bænum eru hús í góðu standi. Sjálf bý ég með minni fjölskyldu við götuna Staðarvör í húsi sem er óskemmt með öllu; ekki ein einasta saumspretta. Núna vonumst við til að geta, í framhaldi af skammtímaleigu í sumar, haft húsið til lengri tíma. Í Grindavík viljum við vera,“ segir Guðbjörg.
Fá fram öll sjónarmið
Í dag, laugardag, verður á vegum Þórkötlu haldið í Kviku; fundarsal í íþróttamiðstöð Grindavíkur, málþing um framtíð bæjar og uppbyggingu þar. Yfirskriftin er Höldum til hafs á ný og er með því vísað til þess að öðru fremur er Grindavík verstöð og útgerðarbær.
„Við teljum mikilvægt að fá öll sjónarmið og hugmyndir fram. Niðurstöðurnar geta svo nýst í því uppbyggingarstarfi sem fram undan er,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir.