Lögreglustjórinn Mikið mæddi á Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum þegar eldgos gengu yfir á Reykjanesskaga. Þá hefur og verið í mörg horn að líta á landamærunum á Keflavíkurflugvelli, m.a. vegna smygls.
Lögreglustjórinn Mikið mæddi á Úlfari Lúðvíkssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum þegar eldgos gengu yfir á Reykjanesskaga. Þá hefur og verið í mörg horn að líta á landamærunum á Keflavíkurflugvelli, m.a. vegna smygls. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úlfar Lúðvíksson, sem lét af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, mun njóta óbreyttra launakjara til og með 15. maí 2026. Með óbreyttum launakjörum er átt við heildarlaun, þ.e. mánaðarlaun, einingar og önnur laun sem starfinu fylgja

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Úlfar Lúðvíksson, sem lét af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, mun njóta óbreyttra launakjara til og með 15. maí 2026. Með óbreyttum launakjörum er átt við heildarlaun, þ.e. mánaðarlaun, einingar og önnur laun sem starfinu fylgja.

Þetta kemur m.a. fram í starfslokasamningi sem dómsmálaráðuneytið gerði við hann og dagsettur er 13. maí sl., daginn eftir fund Úlfars með dómsmálaráðherra. Dómsmálaráðuneytið afhenti Morgunblaðinu samninginn í gær.

Í samningnum segir að lausnarbréf verði gefið út þann 13. maí sem veiti honum lausn frá embættinu frá 14. maí að telja.

Auk óbreyttra launakjara kveður samningurinn á um að þann 1. júní 2026 verði gert upp ótekið orlof. Á gildistíma samningsins verða greidd framlög í lífeyrissjóð, viðbótarframlag í séreignalífeyrissjóð, desemberuppbót ásamt öðrum þeim greiðslum sem starfskjörum hans fylgja. Komi til hækkunar launa lögreglustjórans á Suðurnesjum á tímabilinu mun Úlfar njóta þess.

Tillaga um málsmeðferð

Í minnisblaði Hauks Guðmundssonar ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins til Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, sem Morgunblaðið fékk afhent, er greint frá tillögu til ráðherra um málsmeðferð.

Þar segir: „Í ljósi þeirra umfangsmiklu breytinga sem fyrirhugaðar eru á verkefnum og skipulagi embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum er talið nauðsynlegt að ráðherra taki ákvörðun um það hvort rétt sé að tilkynna lögreglustjóranum á Suðurnesjum um auglýsingu embættisins.“

Dagsett á fundardag

Minnisblaðið er dagsett 12. maí sl., þ.e. sama dag og Úlfar gekk á fund ráðherra þar sem honum var tilkynnt að embættið yrði auglýst við lok skipunartíma hans í nóvember nk. Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mæla fyrir um að tilkynna beri embættismönnum að embættið verði auglýst laust til umsóknar, ekki síðar en sex mánuðum áður en fimm ára skipunartími viðkomandi rennur út. Ellegar framlengist skipunartíminn um önnur fimm ár.

Úlfar var skipaður í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum frá og með 16. nóvember 2020 og varð því að tilkynna honum að embættið yrði auglýst ekki síðar en 16. maí.

Miklar breytingar í farvatninu

Í minnisblaði ráðuneytisstjórans kemur fram að fram undan séu miklar breytingar í málaflokkum útlendinga og landamæra. Í haust muni dómsmálaráðherra leggja fram frumvarp um brottfararstöð og móttökumiðstöð á landamærunum fyrir þá útlendinga sem beri að yfirgefa landið, en frumvarp þessa efnis er sagt vera til vinnslu í ráðuneytinu.

Tillaga um innleiðingu skimunarreglugerðar

Þar á m.a. að leggja til að innleidd verði svokölluð skimunarreglugerð Evrópusambandsins um skimun ríkisborgara þriðju ríkja sem ekki hafi heimild til dvalar á Schengen-svæðinu. Einnig eigi að innleiða að fullu tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins um sameiginlega málsmeðferð í aðildarríkjunum varðandi endursendingar ríkisborgara þriðju ríkja sem dvelja ólöglega í landinu.

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er ætlað að bera ábyrgð á rekstri brottfararstöðvarinnar sem og starfsmannahaldi.

Þá er og ætlunin að taka fyrirkomulag móttökumiðstöðvar til endurskoðunar, þannig að hún verði nálægt landamærastöðinni í Keflavík. Móttökumiðstöðin er nú í Reykjavík og heyrir undir lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu. Með breytingunni myndi starfsemin flytjast til lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Þá er sagt líklegt að starfsemi heimferða- og brottfarardeildar Ríkislögreglustjóra verði og færð undir embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.

„Markmið stjórnvalda er að þessar breytingar muni leiða til markvissari meðferðar mála. Þá verður að telja að það muni auka hagræði og skilvirkni að hafa þessar þrjár einingar undir stjórn og ábyrgð sama embættis sem staðsettar væru við landamælin,“ segir í minnisblaði ráðuneytisstjórans til ráðherrans.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson