Strætisvagn Á leið í Lækjargötu. Þægilegur ferðamáti og allir kátir.
Strætisvagn Á leið í Lækjargötu. Þægilegur ferðamáti og allir kátir. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frá og með 1. júní næstkomandi verður ekki lengur hægt að staðgreiða fargjöld með reiðufé í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Áfram verður þó hægt að borga með seðlum og korti í þeim vögnum sem eru í ferðinni úti á landi

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Frá og með 1. júní næstkomandi verður ekki lengur hægt að staðgreiða fargjöld með reiðufé í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Áfram verður þó hægt að borga með seðlum og korti í þeim vögnum sem eru í ferðinni úti á landi. Sömuleiðis verður mögulegt að kaupa fargjöld með reiðufé í móttöku Strætó á Hesthálsi 14 í Reykjavík.

Úrval greiðslumöguleika hefur, segir í tilkynningu frá Strætó, aukist til muna. Nú er til dæmis hægt að greiða snertilaust með greiðslukorti í öllum vögnum. Þau sem borga með reiðufé eru fá, eða einungis 2,3% viðskiptavina. Því er ljóst að klinkið hefur verið mjög á útleið meðal farþega strætisvagna eins og annarra. Flestir velja nú að nota kort, símagreiðslur eða aðrar tæknilegar lausnir sem er líka orðið á færi flestra að nota.

Hægt er að kaupa Klapp-tíur og Klapp-kort með reiðufé á sölustöðum Strætó. Samhliða þessari breytingu verður sölustöðum fjölgað og því að frá 1. júní verður hægt að kaupa Klapp-tíur og -kort í flestum sundlaugum í Reykjavík.

Greiðslumöguleikar í boði fyrir viðskiptavini eru þar með eftirfarandi: Snertilausar greiðslur, Klapp-kort, Klappið-app og Klapp-tíur.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson