Evrópubikar
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
„Líðanin er mjög góð og ég er róleg. Þessi vika er búin að vera svolítið lengi að líða en við höldum spennustiginu góðu. Við spáum í litlu hlutina sem við þurfum að undirbúa.
Svo þegar maður vaknar á morgun [í dag] þá áttar maður sig örugglega á því hvaða dagur er,“ sagði Hildigunnur Einarsdóttir, þrautreyndur línumaður Vals í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið fyrir einn stærsta leik ferilsins.
Valur mætir spænska liðinu Porrino í síðari úrslitaleik liðanna í Evrópubikar kvenna á Hlíðarenda klukkan 15 í dag. Fyrri leiknum í Porrino á Spáni fyrir viku lauk með jafntefli, 29:29, og því er allt galopið í einvíginu. Eitt er þó ljóst; Evrópubikar í handknattleik fer á loft í leikslok og verður það í fyrsta sinn á Íslandi.
Kvennalið Vals getur fetað í fótspor karlaliðs félagsins sem gerði sér lítið fyrir og vann einmitt Evrópubikarinn, í Grikklandi, á síðasta tímabili. Var það fyrsti bikar íslensks félagsliðs í Evrópukeppni. Valsliðið freistar þess að verða það fyrsta frá Íslandi sem vinnur slíkan bikar í kvennaflokki.
Gaf okkur rosalega mikið
Valur stendur fyrir heljarinnar dagskrá sem hefst klukkan 13 og stendur fram á kvöld. Kalla Valsmenn eftir því að allir mæti sem vettlingi geta valdið og styðji liðið til sigurs.
„Það skiptir öllu máli að hafa fulla höll. Það er bara þannig í þessum keppnum að þú kemst langt með því að vera með alvöru heimavöll. Þær voru klárlega með það úti.
Við sugum alveg í okkur þessa orku og þessi læti sem voru þarna en það er öðruvísi þegar þú ert á heimavelli samanborið við á útivelli. Við fundum það í síðasta leik sem við spiluðum hérna heima.
Það var fullt af fólki, mikil læti og þetta gaf okkur rosalega mikið. Þannig að við vitum að fullt hús á morgun [í dag] mun vera sem aukamaður fyrir okkur,“ sagði Hildigunnur, en fullt var út úr dyrum í höllinni í Porrino síðastliðinn laugardag og hávaðinn gífurlegur hjá 2.400 manns.
Í lagi að þetta séu lokasporin
Hjá henni sjálfri er farsæll ferill senn á enda. Hildigunnur lék í níu ár sem atvinnumaður í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð og Austurríki, yfir 100 A-landsleiki, og tók þátt á HM 2023. Með Val hefur hún verið afar sigursæl og getur enn bætt við Evrópubikar og einum Íslandsmeistaratitli til viðbótar í safnið.
„Auðvitað poppar það upp í hugann að eftir tvær vikur eða eitthvað svoleiðis sé þetta búið. En ég hef bara einbeitt mér að því að njóta og maður hugsar sérstaklega vel um sig á þessum lokametrum.
Ég hef glímt við hitt og þetta á tímabilinu, búin að vera í meiðslum og veseni, en í raun er tilfinningin bara góð að enda þetta svona vel. Þetta eru forréttindi, að einn af síðustu leikjunum mínum sé úrslitaleikur í Evrópubikarnum.
Við erum ekkert búin að spá í úrslitaeinvígið við Hauka þó við vitum af því þarna handan við hornið. Mér finnst allt í lagi að hugsa til þess að þetta séu lokasporin hjá mér,“ sagði Hildigunnur hreinskilin.
Þá klárum við þetta
Hún sagði Valsliðið reiðubúið fyrir síðari úrslitaleikinn og velktist ekki í vafa um hvað það þyrfti að bæta frá erfiðum fyrri leik á Spáni til þess að vinna síðari leikinn í dag og hrósa sigri í Evrópubikarnum.
„Við þurfum að bæta vörnina. Þá fáum við meiri markvörslu og vonandi fleiri hraðaupphlaup. Ekki bara fyrsta tempós hraðaupphlaup, heldur líka annars og þriðja.
Við þurfum að setja aðeins meiri hraða í leikinn okkar en var úti. Með því held ég að við klárum þetta, með betri varnarleik,“ sagði Hildigunnur í samtali við Morgunblaðið.