Sérútbúinn fágætissalur verður opnaður formlega í Safnahúsi Vestmannaeyja á morgun, á safnadeginum, að viðstöddum ráðherrum og biskupi Íslands.
Í salnum verða meðal annars geymdar um 1.500 sjaldgæfar bækur sem Ágúst Einarsson prófessor emeritus gaf Bókasafni Vestmannaeyja árið 2017. Meðal bókanna eru allar útgáfur Biblíunnar sem hafa verið prentaðar hér á landi og bækur sem hvergi eru til nema á Landsbókasafninu. Segir Kári Bjarnason forstöðumaður Safnahússins að þessi bókagjöf eigi sér vart hliðstæðu í sögunni.
Ágúst gaf safninu bækurnar í minningu föður síns, Einars Sigurðssonar útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. „Faðir minn leit svo á, og ég geri það einnig, að bækur séu besta leiðin til velsældar því velsæld og menntun eiga uppruna sinn í bókum og rituðu máli,“ segir Ágúst. » 16