Lilja Hrönn Hauksdóttir fæddist í Reykjavíkur en ólst upp í Garðabænum frá fimm ára aldri. Hún gekk í Flataskóla og lauk grunnskólanum í Garðaskóla 15 ára gömul. „Ég var einu ári á undan, því ég kunni að lesa.“ Síðan fór hún í Verslunarskólann og þar var hún í eitt og hálft ár. „Ég bjó við þannig aðstæður á þeim tíma að ég fór að heiman fimmtán ára gömul og þurfti að sjá fyrir mér sjálf og þess vegna varð ég að hætta í skólanum og fara að vinna.“
Lilja var enginn nýgræðingur á vinnumarkaði þrátt fyrir ungan aldur. „Ég kunni að vinna og var góð í sölustörfum. Mamma hafði rekið verslun og ég ólst þar meira og minna upp. Þegar ég var 11 ára sá ég um verslunina heilt sumar, svo ég var vön þessu. Auðvitað vildi maður frekar vera úti í sólinni í brennó, en svona var þetta bara.“
Þessi reynsla kom Lilju til góða. „Ég elskaði að vera í kringum fólk og hafði mjög gaman af því sem ég var að gera. Ég fór að selja auglýsingar í hin og þessi blöð og þarna kikkar inn sölumennskan hjá mér og ég var m.a. að vinna fyrir Mannlíf og síðar Heimsmynd. Síðan stjórnaði ég áskriftasölu 10-15 manna hóps á kvöldin, þannig að frá sextán ára aldri til 21 vann ég alveg frá 10 á morgnana til 10 á kvöldin. Ég var mjög ákveðin að ég ætlaði að ná langt í lífinu og vildi koma undir mig fótunum.“
Aðeins 21 árs gömul stofnaði hún verslunina Cosmo, sem hún rekur enn. „Ég var langyngsti kaupmaðurinn í Kringlunni og þurfti alveg að sanna mig, bæði hérna heima og ekki síður í innkaupum erlendis. „Do you have a shop?“ var ég oft spurð þegar ég var að kaupa inn föt. En þeir áttuðu sig fljótt á því að hér væri alvöru kona á ferðinni. Ég staðgreiddi allar vörur og hef eignast marga vini í bransanum,“ segir Lilja. „Ég opnaði Cosmo ásamt 200 fyrirtækjum þegar Kringlan var opnuð. Við erum bara sex fyrirtæki eftir af þessum upprunalega fjölda,“ segir hún, en það sýnir líka áherslur hennar í viðskiptum.
„Ég hef valið vel starfsfólk og andinn hjá okkur er að kúnninn sé alltaf í fyrsta sæti og við veitum góða þjónustu. Ég er dugleg að hrósa starfsmönnum mínum og fæ oft að heyra frá viðskiptavinum hvað það sé gott að koma til okkar, enda leggjum við okkur fram við að skapa góða og hlýja stemningu og margir okkar fastakúnna eru orðnir góðir vinir mínir.“
Lilja segir áhugann á tísku ekkert hafa minnkað. Við erum með mjög breiðan viðskiptamannahóp, alveg frá fermingarstelpum upp í eldri konur, svo ég er með mjög breiða línu í búðinni. Þegar ég fer í innkaupaferðir finnst mér ég vera að opna jólapakkana, þetta er svo gaman, þótt það sé mikið að gera í þessum ferðum. En ég er líka svolítið þannig að ég vil vera í hringiðunni og finnst bara ofboðslega gaman í vinnunni.“
Lilja segir að hún viti ekkert betra til að hlaða batteríin en að fara í sólarfrí. „Við reynum að fara í sólina fjórum sinnum á ári, og á sumrin höfum við gaman af því að fara í útilegur og á veturna að kveikja upp í arninum og hafa það kósí heima.“
Lilja segist mjög heppin með fjölskylduna. „Börnin mín eru yndisleg og mjög dugleg. Ég á yndislegan mann sem er mikill pabbi og afi og styður mig í einu og öllu og ég er alltaf rosalega skotin í honum.”
Á afmælisdaginn ætlar Lilja að halda upp á afmælið í Cosmo í Kringlunni og það verður lifandi tónlist, veitingar og hún tekur á móti nýjum og gömlum viðskiptavinum, vinum og vinkonum. „Við ætlum að gera daginn eftirminnilegan og vera með happdrætti og alls konar skemmtilegt.“
Fjölskylda
Eiginmaður Lilju er Jakob Freyr Jakobsson verslunarmaður, f. 22.5. 1966. Foreldrar hans eru Jakob Vignir Kristjánsson, f. 5.3. 1932, og Guðrún Gestsdóttir, f. 15.11. 1932.
Börn Lilju og Jakobs Freys eru 1) Jakob Daníel Jakobsson, var að ljúka meistaranámi í fjármálum, f. 13.10. 1993; 2) Haukur Snær Freysson, f. 27.6. 1996, lýkur rafvirkjanámi um jólin, og 3) Sara Lind Jakobsdóttir, f. 11.6. 2003, í tannlæknanámi á Kýpur. Barnabarn Lilju er Embla Ýr Hauksdóttir, f. 28.3. 2017.
Systkini Lilju eru Hrafn, f. 1956; Hulda, f. 1961; og Haukur Örn, f. 1974.
Foreldrar Lilju eru Haukur Sævaldsson verkfræðingur, f. 24.10. 1930, d. 30.3. 2003, og Bára Þórarinsdóttir verslunarkona, f. 2.7. 1934.