Njarðvík, Fylkir, ÍR og HK eru öll með fimm stig í fjórum efstu sætum 1. deildar karla í fótbolta eftir að þau léku í 3. umferðinni í gærkvöldi.
Njarðvíkingar eru á toppnum með bestu markatöluna eftir jafntefli við ÍR, sem er í þriðja sæti. Urðu lokatölur í Njarðvík 1:1 og bæði lið sennilega svekkt að fara ekki með sigur af hólmi.
ÍR-ingar geta verið svekktir því Marc McAusland kom liðinu yfir á 82. mínútu. Njarðvíkingar mega vera svekktir því Svavar Örn Þórðarson jafnaði á 84. mínútu og Vilhelm Þráinn Sigurjónsson í marki ÍR varði víti frá Omar Diouck á lokamínútunni.
HK, sem er spáð góðu gengi á leiktíðinni, náði í sinn fyrsta sigur undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar er liðið heimsótti Leikni í Breiðholtið. Var staðan markalaus allt fram að 85. mínútu en þá skoraði Dagur Ingi Axelsson sigurmarkið. Dagur kom til HK frá Fjölni fyrir leiktíðina og er markið það fyrsta sem hann skorar fyrir sitt nýja lið.
Leiknir fer ekki vel af stað, því liðið er aðeins með eitt stig og er án sigurs.
Þá mistókst Fylki að komast einn á toppinn þar sem liðið gerði jafntefli við Fjölni, 1:1, í Grafarvoginum. Árni Steinn Sigursteinsson kom Fjölni óvænt yfir á 16. mínútu. Var staðan 1:0 allt þar til á 80. mínútu þegar varnarmaðurinn Orri Sveinn Segatta skoraði eftir hornspyrnu og skiptu liðin með sér stigunum.
Fjölnir er enn án sigurs eftir þrjá leiki, með tvö stig, en hefur á sama tíma aðeins tapað einum leik af þremur.