Heimsmetið í Valhúsaskóla Einar S. Einarsson og aðrir viðstaddir hylla Hort eftir afrekið.
Heimsmetið í Valhúsaskóla Einar S. Einarsson og aðrir viðstaddir hylla Hort eftir afrekið. — Ljósmynd/Sigurjón Jóhannsson.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tékkneski stórmeistarinn Vlastimil Hort, sem lést 12. maí sl. 81 árs að aldri, er sennilega þekktastur hér á landi fyrir einvígi sem hann háði við Boris Spasskí í Kristalsal Hótels Loftleiða veturinn 1977 og var hluti áskorendakeppninnar í skák og…

Skák

Helgi Ólafsson

helol@simnet.is

Tékkneski stórmeistarinn Vlastimil Hort, sem lést 12. maí sl. 81 árs að aldri, er sennilega þekktastur hér á landi fyrir einvígi sem hann háði við Boris Spasskí í Kristalsal Hótels Loftleiða veturinn 1977 og var hluti áskorendakeppninnar í skák og síðar vegna heimsmets í fjöltefli sem hann setti í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi nokkrum dögum síðar. Þetta var óvæntur viðburður sem stóð í rúman sólarhring en var stofnað til með þeim hætti að eitt íslensku dagblaðanna hafði slegið því upp sem aprílgabbi að Hort hygðist reyna við heimsmet í fjöltefli. „Fréttin“ sú var dregin til baka en Skáksambandsmönnum fannst hugmyndin góð og ákváðu að skipuleggja fjölteflið, sem hófst síðan snemma laugardags 23. apríl og lauk undir gráan morgun 24. apríl. Hort var glaður og reifur en dauðþreyttur eftir að hafa att kappi við 550 mótherja. Staðfest heimsmet. Sorg og sút eftir tapið fyrir Spasskí var á bak og burt og eftir sat gleði og væntumþykja til „tékkneska bangsans“ sem hafði komið svo drengilega fram við Spasskí er hann fékk botnlangakast við lok 12. skákar og fresta þurfti einvíginu.

Vlastimil Hort var fremsti skákmaður Tékka um langt árabil. Hann tefldi á 1. borði fyrir þjóð sína sem varð í 2. sæti á eftir Sovétmönnum á Ólympíumótinu í Luzern í Sviss árið 1982. Hann var aldrei fyllilega sáttur við þróun mála í heimalandi sínu eftir innrás Sovétríkjanna í ágúst 1968 og flutti því til Þýskalands og bjó þar upp frá því. Árið 1970 var hann valinn til að tefla á 4. borði fyrir heimsliðið í keppni við úrvalslið Sovétríkjanna í Belgrad. Larsen, Fischer, Portisch og Hort fengu samtals 10½ vinning af 16 á fyrstu fjórum borðunum af tíu og þótti það mikill álitshnekkir fyrir „sovéska skákskólann“.

Hort mætti Lev Polugajevskí og vann 2½:1½. Það er hrein ánægja að fara yfir eftirfarandi sigurskák hans úr einvígi þeirra. Hort var nefnilega þeim göldrum gæddur að geta töfrað fram leiki sem voru ofar skilningi flestra.

Heimurinn – Sovétríkin, Belgrad 1970, 1. umferð:

Vlastimil Hort – Lev Polugajevskí

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4 5. Dxd4 e6 6. Rf3 Rc6 7. De4 d6 8. Rbd2 dxe5 9. Rxe5 Rf6 10. Da4 Dd5 11. Rdf3 Bd6 12. Bf4 De4+ 13. Dxe4 Rxe4 14. Bd3 Rxe5 15. Bxe5 Bxe5 16. Rxe5 Rc5 17. Bc2 f6 18. Rc4 Ke7 19. 0-0-0 Bd7 20. b4!

(Staða sem lætur ekki mikið yfir sér en tryggir gott frumkvæði hvíts . Polu verst þó vel í framhaldinu.)

20. … Ra6 21. Rd6 b6 22. Hhe1 g6 23. Bb3 Had8 24. f4 Rc7 25. f5!

25. … gxf5 26. Rxf5+ Kf7 27. Hd3 Bc8 28. Hg3 Re8 29. Rd4 Rc7 30. Rf5 Re8 31. Rd4 Rc7 32. He4 Hdg8 33. Hxg8 Hxg8 34. Rf5 Hd8 35. Hg4 Re8 36. Hh4 h5 37. Hxh5

Eftir mikla pressu vann hann loks peð. „Vélarnar“ telja þó stöðuna enn jafna og að betra hefði verið að leika 37. Rd4.

37. … Kg6 38. Rg3 Rg7 39. Hh4 Bb7 40. Hg4+ Kf7 41. Re2 f5 42. Hc4 Re8 43. Hd4 Hd6 44. Rf4 Bc8 45. Ba4!

Hort sá fram á að svartur myndi aldrei þola uppskipti á biskup fyrir riddara.

45. … Hxd4

46. Bxe8+ Kxe8 47. cxd4 Ke7 48. Kd2 Kf6 49. Rd3 Kg5 50. Ke3 Ba6 51. Rf4 Bc4 52. a3 a5 53. g3 Kg4 54. Kf2 Kg5 55. h4+ Kf6 56. Ke3 axb4 57. axb4 e5 58. Rd3 exd4+ 59. Kxd4 b5 60. Rf4 Bf1 61. Kd5 Bc4 62. Kd6 Bb3 63. Rd5+ Kg6 64. Ke5 Bc2 65. Re7+ Kh5 66. Rxf5

– og svartur gafst upp.