PCC Útlitið er dökkt þessa dagana.
PCC Útlitið er dökkt þessa dagana. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
„Staða mála hjá okkur er óbreytt, útlitið er dökkt og það blasir ekkert annað við en rekstrarstöðvun, þótt engin ákvörðun þar um hafi verið tekin enn,“ segir Kári Marís Guðmundsson, forstjóri PCC BakkaSilicon á Húsavík, í samtali við Morgunblaðið

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Staða mála hjá okkur er óbreytt, útlitið er dökkt og það blasir ekkert annað við en rekstrarstöðvun, þótt engin ákvörðun þar um hafi verið tekin enn,“ segir Kári Marís Guðmundsson, forstjóri PCC BakkaSilicon á Húsavík, í samtali við Morgunblaðið.

Hann kynnti stöðu mála fyrir nefndarmönnum í atvinnuveganefnd Alþingis í gær, en fyrr í vikunni var haldinn fundur bæjarfulltrúa í Norðurþingi með þingmönnum Norðausturkjördæmis þar sem hin alvarlega staða fyrirtækisins var til umræðu.

„Ég heyri ekki betur en að það sé góður almennur stuðningur hjá þingmönnum allra flokka,“ segir hann og vísar þar til þess að fyrirtækið hafi óskað eftir að lagðir verði svokallaðir undirboðstollar á kínverskan kísilmálm sem framleiddur er með ríkisstuðningi þar í landi.

Tollvernd í Evrópu

Kári Marís segir að í ríkjum Evrópusambandsins sé lagður 16,6-16,8% undirboðstollur á slíkar vörur og að í desember sl. hafi evrópskir framleiðendur að auki krafist þess að lagðir yrðu sérstakir verndartollar á allan kísilmálm sem fluttur er inn til Evrópu. Kröfu fyrirtækisins um tollvernd á kínverskan innflutning var beint til fjármála- og efnahagsráðuneytisins og spurður um stöðu mála þar segir Kári Marís að kalla eigi saman sérstaka fimm manna nefnd til að fara yfir málið og muni hún skila af sér niðurstöðu í framhaldinu.

Hann segir að bent hafi verið á ákvæði í tollalögum um undirboðstolla sem veiti heimild til að leggja á toll til bráðabirgða í 12 mánuði, en slíkt sé leyfilegt án þess að sérstök rannsókn hafi farið fram áður. Telur hann að slík ráðstöfun geti notið meirihlutastuðnings á Alþingi.

„Það er hægt að gera til að bregðast við,“ segir Kári Marís og nefnir einnig að bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hafi verið gefnar út skýrslur sem varpi ljósi á vinnuþrælkun í kísiliðnaðinum í Kína, en það sé einnig ástæða fyrir því að lagðir hafi verið tollar á innflutning slíks varnings í Evrópu og Bandaríkjunum.

Fram hefur komið að ef ekki rætist úr í rekstri fyrirtækisins á næstu vikum sé ekkert annað í stöðunni en að fara í rekstrarstöðvun. Nú er verið að vinna úr því hráefni sem fyrir hendi er, en að því loknu blasir stöðvun við. Hjá PCC BakkaSilicon vinna nú um 130 manns og hefur fækkað um 20 frá áramótum. » 24

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson