Sveitirnar Verkið verður nú frumflutt á Íslandi í Norðurljósum Hörpu.
Sveitirnar Verkið verður nú frumflutt á Íslandi í Norðurljósum Hörpu.
Open Orchestra í Edinborg heimsækir Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í tilefni 35 ára afmælis þeirrar síðarnefndu og saman halda hljómsveitirnar tónleika í Norðurljósum Hörpu á morgun, sunnudaginn 18. maí, klukkan 16

Open Orchestra í Edinborg heimsækir Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í tilefni 35 ára afmælis þeirrar síðarnefndu og saman halda hljómsveitirnar tónleika í Norðurljósum Hörpu á morgun, sunnudaginn 18. maí, klukkan 16. Segir um viðburðinn að heimsókn Open Orchestra eigi sér langan aðdraganda. Til hafi staðið að hljómsveitirnar færu í gagnkvæmar heimsóknir árið 2020 en af alkunnum ástæðum hafi ekki orðið af þeim þá. Hugmyndin varð þó til þess að tónskáldið Tom Cunningham samdi verk til frumflutnings á tónleikum sveitanna. Vísar verkið til sameiginlegrar eldvirkniarfleifðar landanna, „Land of fire and water“, og var það frumflutt í Edinborg 2022.