Sýningin Jöklablámi verður opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri í dag, laugardaginn 17. maí, kl. 14 og stendur til og með 22. júní. Segir í tilkynningu að opið verði alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 17 og að listamenn á sýningunni séu þau Þorvarður Árnason, Þóranna Dögg Björnsdóttir, sem einnig er sýningarstjóri, Konstantine Vlasis, Gústav Geir Bollason, Leila Vilmouth, Clara Midon Gomez, Miä Brenguier, Céleste Philippot og Paulinea Brami.
„Jöklablámi er margmiðlunarsýning, tileinkuð fyrsta alþjóðaári jökla. Uppistaða sýningarinnar er myndefni (ljósmyndir og myndbönd) af jöklum Hornafjarðar sem Þorvarður Árnason hefur skapað/safnað í næstum tvo áratugi, einkum þá að vetrarlagi.“
Þá dragi sýningin nafn sitt af sérstæðum bláum lit, jöklabláma, sem alla jafnan sé aðeins sýnilegur um hávetur, eftir að jökulísinn hafi undirgengist ákveðin árstíðabundin hamskipti.