„Þegar útkallið barst Landhelgisgæslunni var skipið í 260 sjómílna fjarlægð, sem er gríðarlega langt frá landi, og það var á suðurleið svo það er ákveðið að staðurinn sem þyrlan og skipið mætist á sé um 150 sjómílur frá landi.“
Þetta segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar um málalok sjúkraflugs í gær þegar farþegi á téðu skipi tók slíka sótt að annað þótti ekki tækt en að koma honum undir læknishendur á sjúkrahúsi.
Að sögn Ásgeirs fara tvær þyrlur í útköll er um slíka fjarlægð frá landi er að tefla „og sömuleiðis var gripið til þess ráðs að kalla út flugvélina TF-SIF, það var það mikil þoka yfir hafsvæðinu sem gerði verkefnið mjög flókið. Hlutverk flugvélarinnar var bæði að finna hagstæðustu flugleið og sömuleiðis að finna hentugan stað, eða glufu, til að sinna þessu verkefni,“ segir Ásgeir frá.
Allt hafi þó gengið vel og sjúklingurinn verið hífður um borð í aðra þyrluna um kvöldmatarleytið í gær 150 sjómílur austnorðaustur af Langanesi. „Frá þeim stað var flogið inn á Egilsstaði og þar var sjúklingurinn fluttur frá þyrlunni yfir í flugvélina og með henni til Reykjavíkur þar sem honum var komið undir læknishendur á Landspítalanum,“ segir Ásgeir.
Segir hann verkefnið hafa verið flókið og krefjandi en gengið mjög vel. „Þarna reyndi á samvinnu þriggja áhafna og þetta gekk alveg glæsilega.“ atlisteinn@mbl.is