Máli Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Þetta staðfesti embætti ríkislögmanns við mbl.is.
Greint var frá því í gær að Margeir hefði haft betur í héraði gegn íslenska ríkinu en hann hafði stefnt ríkinu fyrir að hafa verið færður í starfi á ólögmætan hátt. Krafðist hann þess að ógilt yrði ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 16. október 2023 um breytingu á störfum sínum og verksviði.
Sömuleiðis krafðist Margeir þess að fá greiddar 10 milljónir króna vegna atviksins, auk málskostnaðar. Dómurinn dæmdi Margeiri tvær milljónir í bætur, auk málskostnaðar, og að ákvörðun lögreglustjórans yrði ógilt.