50 ára Berglind er borinn og barnfæddur Vesturmannaeyingur. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á matreiðslu og hollustu og er þekkt fyrir bækur sínar um matreiðslu, Heilsurétti fjölskyldunnar, Nýir heilsuréttir og Gott. Síðasta bókin tengist veitingastaðnum Gott sem hún rekur ásamt eiginmanni sínum í Eyjum, en þau hafa stuðlað að því að Vestmannaeyjar komust á kortið sem áfangastaður fyrir sælkera, en staðurinn er þekktur fyrir ferskt hráefni úr nærumhverfinu.
„Við höfum komið að Matey sjávarréttahátíð og einnig verið með fræga gestakokka hjá okkur á Gott og gert ýmislegt til þess að laða fleiri ferðamenn til Vestmannaeyja,“ segir Berglind sem var formaður Ferðamannasamtakanna í átta ár en er nýhætt því starfi.
Fyrir fjórum árum fór Berglind að mála myndir. „Veitingareksturinn er mjög erilsamt starf og mig vantaði eitthvað til að róa mig niður. Ég hætti síðan að mála og fór að gera listaverk úr leikföngum. Ég geri orginal verk þar sem ég raða saman leikföngum og þau seldust alltaf upp um leið og núna rek ég vefsíðuna toyart.is þar sem ég sel eftirprentanir af verkunum.“
Berglind segir að þessi aðferð í myndlist hennar tengist líka áhuganum á endurnýtingu. „Það veitir mér gleði að sjá eldri hluti fá nýtt líf í nýju hlutverki, svo þá dagi ekki uppi, ónotaðir í geymslum.“
Berglind ætlar að halda upp á afmælið með hjónafríi. „Við ætlum að skella okkur austur á Fosshótel Glacier Lagoon. Það gefst ekki oft tækifæri fyrir okkur tvö að fara eitthvað saman, svo þetta verður kærkomið frí.“
Fjölskylda Eiginmaður Berglindar er Sigurður Friðrik Gíslason matreiðslumaður, f. 1975, og þau eiga börnin Sigmar Snæ, f. 2000, hugbúnaðarverkfræðing sem vinnur í Arion banka; Clöru, f. 2002, sem er að læra innanhússarkitektúr í Flórens á Ítalíu; Anton Frans, f. 2008, menntaskólanema; og Matthías, f. 2010, grunnskólanema.