Þó að maímánuður sé ekki nema rétt rúmlega hálfnaður hefur hitamet síðasta sumars í Reykjavík þegar verið slegið. Var það sumar með kaldara móti og náði hitinn í höfuðborginni hæst 17,4 gráðum. Í gær mældist hann aftur á móti 19 gráður
Þó að maímánuður sé ekki nema rétt rúmlega hálfnaður hefur hitamet síðasta sumars í Reykjavík þegar verið slegið. Var það sumar með kaldara móti og náði hitinn í höfuðborginni hæst 17,4 gráðum. Í gær mældist hann aftur á móti 19 gráður. Börn í Vesturbæ Reykjavíkur nýttu blíðviðrið heldur betur vel og tóku þátt í litahlaupi á Ægisíðu sem skipulagt var af frístundamiðstöðvum í hverfinu.