ÍBV fær Val í heimsókn í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta en dregið var til þeirra í gær. Afturelding tekur á móti Fram, Stjarnan mætir Keflavík og Vestri fær Þór í heimsókn til Ísafjarðar. Leikið verður 18. og 19. júní.
Í bikarkeppni kvenna drógust bikarmeistarar Vals á móti Þrótti í stórleik 8-liða úrslitanna. Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta nágrönnum sínum í HK, Þór/KA og FH leika á Akureyri og Tindastóll mætir ÍBV á Sauðárkróki. Leikið verður 11. og 12. júní.
Eggert Aron Guðmundsson skoraði sitt annað mark í þremur leikjum í gær þegar Brann gerði jafntefli við Sarpsborg á heimavelli í Bergen, 2:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann kom Brann yfir á 4. mínútu en Sarpsborg jafnaði metin á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Viking og Rosenborg unnu sína leiki og Viking er með 20 stig á toppnum, Rosenborg 18 og Brann er síðan með 17 stig í þriðja sætinu.
Stefán Ingi Sigurðarson framherji Sandefjord var rekinn af velli í uppbótartíma leiksins þegar lið hans tapaði 3:1 fyrir Viking í Stavanger. Leikin var heil umferð í deildinni í gær eins og venjan er 16. maí, daginn fyrir þjóðhátíðardag Norðmanna.
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék í gær á samtals 76 höggum, fjórum yfir pari, á fyrsta hring á Opna hollenska meistaramótinu sem fram fer á Goyer-vellinum í Utrecht. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri næststerkustu í heimi. Hún er í 84. sæti af 132 keppendum en annar hringur er leikinn í dag og lokahringurinn á morgun.
Hörður Unnsteinsson er hættur þjálfun í körfubolta eftir að hafa komið kvennaliði KR upp í úrvalsdeildina í vor. Hann skýrði frá þessu á Facebook í gær en Hörður hefur stýrt KR-liðinu undanfarin fimm ár.
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Hauka í körfubolta. Þetta tilkynnti félagið í gær en Friðrik Ingi, sem er 56 ára gamall, tók við þjálfun Hauka í desember á síðasta ári eftir að Maté Dalmay var sagt upp störfum. Haukar urðu neðstir í úrvalsdeildinni og leika í 1. deild næsta vetur.
Baldur Fritz Bjarnason, hinn 18 ára gamli handboltamaður úr ÍR sem varð markakóngur úrvalsdeildarinnar í vetur, æfði með þýska stórliðinu Magdeburg á dögunum. Baldur skoraði 211 mörk í 22 leikjum fyrir ÍR í vetur.
KSÍ hefur komist að samkomulagi við knattspyrnusamband Englands um að U19-ára landslið karla þjóðanna mætist í vináttuleik ytra í næsta mánuði. Leikurinn fer fram á St. George's Park, þar sem höfuðstöðvar enska sambandsins í Burton eru staðsettar, þann 6. júní. U19-ára landslið Íslands samanstendur af leikmönnum fæddum 2006 og síðar.
Spánverjinn Marc Cucurella var hetja Chelsea er liðið sigraði Manchester United, 1:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Ezri Konza og Boubacar Kamara gerðu mörk Aston Villa sem vann Tottenham á heimavelli, 2:0.
Jhonattan Vegas var efstur á öðrum hring á PGA-meistaramótinu í golfi þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi á átta höggum undir pari. Frakkinn Matthieu Pavon og Matt Fitzpatrick frá Englandi eru næstir á sex höggum undir pari.
Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur framlengt samning sinn við San Pablo Burgos á Spáni. Liðið vann spænsku B-deildina með yfirburðum í vetur og Jón leikur því í sterkustu deild Evrópu á næsta tímabili en hann var í stóru hlutverki hjá San Pablo á nýliðnu tímabili.