„Sú fordæmalausa fólksfækkun sem átt hefur sér stað í Grindavík leiðir til þess að sveitarfélagið fær engin framlög skv. reiknireglum [Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga], ekki einu sinni fólksfækkunarframlag,“ segir Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar í umsögn bæjarins um frumvarp innviðaráðherra um breytingar á almennum jöfnunarframlögum jöfnunarsjóðsins.
„Þetta er gríðarleg breyting því á síðasta ári voru heildarframlög til Grindavíkurbæjar um 1,1 [milljarður kr.] úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Samsvarandi fjárhæð á árinu 2025 mun því skiptast milli annarra sveitarfélaga um land allt sem þannig munu með beinum hætti hagnast fjárhagslega á þeim hamförum sem riðið hafa yfir Grindavík. Það hlýtur hvert mannsbarn að sjá að slíkar reglur eru vægast sagt mjög gallaðar og þarfnast sértækrar breytingar svo tryggja megi fjárframlög frá sjóðnum til Grindavíkur á árinu 2025,“ segir í umsögn Fannars.
Hann segir m.a. í umsögninni að Grindavíkurbær bíði enn úrlausnar sinna mála og að þrátt fyrir samkomulag frá í febrúar í fyrra hafi enn ekki borist framlag vegna greiðsluerfiðleika til bæjarins. Þá sé brýn þörf á framlengingu bráðabirgðaákvæðis um að bærinn hljóti fasteignaskattsframlag til jafns við önnur sveitarfélög. Undanfarið hálft ár hafi Grindavíkurbær ítrekað óskað eftir samtali við innviðaráðuneytið um mögulegar leiðir til þess að tryggja sveitarfélaginu eðlileg útgjaldajöfnunarframlög vegna fólksfækkunar og fordæmalausra sviptinga sem orðið hafa í aðstæðum sveitarfélagsins.
Segir hann að hægur vandi ætti að vera að festa í lög sérreglu sem taki mið af því að íbúafjöldi sveitarfélagsins hefur minnkað um tugi prósenta frá rýmingu bæjarins hinn 10. nóvember 2023. Frá þeim tíma og til seinustu áramóta fækkaði íbúum með lögheimili í Grindavík um 2.366, eða um 63,6%, og birtir hann upplýsingar sem sýna að til viðbótar hefur íbúum fækkað það sem af er árinu 2025 til 5. maí sl. um 930.
Segir Fannar að það yrði algert reiðarslag fyrir sveitarfélagið ef ekki verður brugðist við óskum þess. omfr@mbl.is