Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Þetta er náttúrulega búið að vera sturlað,“ segir Hafdís Sól Björnsdóttir í samtali við Morgunblaðið frá Basel í Sviss þar sem lokakvöld Eurovision-söngvakeppninnar stendur fyrir dyrum í kvöld.
Það eru þau Ágúst Beinteinn Árnason, einnig þekktur sem Gústi B., sem verða augu og eyru lesenda mbl.is þegar þetta sérstaka og árlega sameiningartákn Evrópu sem söngvakeppnin er hefst í 69. skiptið í kvöld. Þau verða í beinni skriflegri útsendingu frá blaðamannahöllinni í kvöld og lýsa keppninni í rituðu máli fyrir lesendum.
Er bar?
„Nei, það er reyndar ekki bar, ég bjóst við að maður gæti nú kannski fengið sér einn kaldan, en maður á bara að vera í vinnunni,“ svarar Hafdís og hlær – grunlaus um að spurningin var bara væg spennulosunartækni fyrir þá sem þyngst hvílir á blaðamanni.
Er það að fara að gerast Hafdís að Svíar muni hrósa sigri í Eurovision í áttunda skipti frá 1974 og þar með hafa sigrað oftast – Getur þetta verið?
Hafdís hugsar sig um og úr þvingaðri þögninni, sem aðeins er rofin af málflaumi Gústa B. í bakgrunninum, má lesa að þetta var spurningin óumflýjanlega sem greip á kýlinu. Mun þjóðin sem sendi Íslendingum Staffan Olsson á níunda tugnum núa saltinu með átta sigrum á móti engum?
„Sko …“ byrjar Hafdís, „ég er með þeim á hótelinu og maður sér að þeir eru alveg „all in“ í þessu, en þó að þeim sé spáð efsta sætinu er ég ekki alveg viss, ég held að þeir verði í öðru eða þriðja sæti, ég bara finn það einhvern veginn á mér,“ segir Hafdís Sól Björnsdóttir, Eurovision-skrifari mbl.is, frá Basel, en kýs að spá þó engu um fyrsta sætið í kvöld.