Þýskir barokkmeistarar er yfirskriftin á tónleikum Kammersveitar Breiðholts, þeim síðustu á vegum 15:15-tónleikasyrpunnar í bili, sem haldnir verða í dag, laugardaginn 17. maí, í Breiðholtskirkju. Segir í tilkynningu að á efnisskránni verði Sónata…

Þýskir barokkmeistarar er yfirskriftin á tónleikum Kammersveitar Breiðholts, þeim síðustu á vegum 15:15-tónleikasyrpunnar í bili, sem haldnir verða í dag, laugardaginn 17. maí, í Breiðholtskirkju. Segir í tilkynningu að á efnisskránni verði Sónata fyrir fjórar raddir eftir Johann Rosenmüller, Lútukonsert í d-moll eftir Friedrich Fasch, þættir úr óratoríunni Sanctus Petrus et Sancta Maria Magdalena og Overture des nations anciens et modernes eftir Georg Philipp Telemann.