Stafur þýðir m.a. dyrastafur: lóðrétt tré í dyraumgerð. Að lenda milli stafs og hurðar merkir að verða útundan, verða afskiptur en bókstaflega að klemmast – milli dyrastafs og hurðar

Stafur þýðir m.a. dyrastafur: lóðrétt tré í dyraumgerð. Að lenda milli stafs og hurðar merkir að verða útundan, verða afskiptur en bókstaflega að klemmast – milli dyrastafs og hurðar. Ekki er gott að það blandist við orðtakið að detta milli skips og bryggju: gleymast, fara forgörðum, og úr verði „falla milli stafs og bryggju“.