Vortónleikar Hér má sjá hluta kórsins fyrir framan Seltjarnarneskirkju.
Vortónleikar Hér má sjá hluta kórsins fyrir framan Seltjarnarneskirkju.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur sína árlegu vortónleika í kirkjunni í dag, laugardaginn 17. maí, klukkan 16. Í tilkynningu um viðburðinn kemur fram að efnisskráin sé bæði falleg og fjölbreytt þar sem finna megi jafnt íslensk þjóðlög og kórlög…

Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur sína árlegu vortónleika í kirkjunni í dag, laugardaginn 17. maí, klukkan 16.

Í tilkynningu um viðburðinn kemur fram að efnisskráin sé bæði falleg og fjölbreytt þar sem finna megi jafnt íslensk þjóðlög og kórlög eftir íslensk og erlend tónskáld, meðal annars enska kórtónlist frá renaissance-tímanum ásamt „Maríubæn“ eftir Arvo Pärt sem kórinn flytur á rússnesku.

Kórstjóri er Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju. Í gegnum tíðina hefur kórinn flutt mörg stór kórverk eftir meðal annars J. Haydn, A. Vivaldi, C. Ph. E. Bach, J.S. Bach, C. Monteverdi, F.B. Mendelssohn og F.X. Brixi.