Norður
♠ K10742
♥ D8643
♦ D54
♣ –
Vestur
♠ Á93
♥ 2
♦ K10987
♣ ÁK52
Austur
♠ D86
♥ –
♦ 63
♣ DG1097643
Suður
♠ G5
♥ ÁKG10975
♦ ÁG2
♣ 8
Suður spilar 6♥ dobluð.
Spilin á smáþjóðaleikunum í Rúmeníu voru mörg lífleg. Í spilinu að ofan voru spiluð bæði 6♣ í AV og 6♥ í NS við nokkur borð og báðar slemmurnar unnust víða. Færeyingar fóru verst út úr spilinu í leik gegn Lettlandi, töpuðu 21 impa og hefðu betur fylgt heilræðinu að segja meira væru þeir í vafa.
Við bæði borð var opnað á 1♥ í suður. Við annað borðið doblaði Lettinn í vestur og Magni Jøkladal í norður stökk í 4♥. Austur sagði 5♣, Pól Engdal í suður sagði 5♥ og eftir tvö pöss barðist austur í 6♣, Pól passaði en Magni doblaði. Eina útspilið sem dugar er spaði en Pól spilaði út ♦Á og sagnhafi gat nú fríað tígulinn og hent spöðum heima.
Við hitt borðið börðust Danjal Pauli Mohr og Arne Mikkelsen einnig í 6♣ í AV en Lettarnir héldu áfram í 6♥. Vestur doblaði en þegar sagnhafi hitti í spaðann og fríaði hann vannst slemman.