Lárus L. Blöndal lætur í dag af störfum sem forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands eftir að hafa sinnt embættinu í tólf ár og verið varaforseti í sjö ár þar á undan. Forsetakjörið fer fram á íþróttaþingi ÍSÍ í dag og niðurstaðan verður ljós laust eftir klukkan 13
Lárus L. Blöndal lætur í dag af störfum sem forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands eftir að hafa sinnt embættinu í tólf ár og verið varaforseti í sjö ár þar á undan. Forsetakjörið fer fram á íþróttaþingi ÍSÍ í dag og niðurstaðan verður ljós laust eftir klukkan 13. Fimm eru í framboði en það eru Brynjar Karl Sigurðsson, Magnús Ragnarsson, Olga Bjarnadóttir, Valdimar Leó Friðriksson og Willum Þór Þórsson.