Staðan kom upp á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Hörpu en mótið var haldið í boði Kviku eignastýringar og Brims. Stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson (2.394) hafði hvítt gegn Rafael Arruebarrena Rodriguez (2.129) frá Venúsúela. 63. Hxe7! Hxh6 svartur hefði einnig tapað eftir 63. … Kxe7 64. Rg8+. 64. He5 Hg6 65. Kd4 Kf7 66. Kd5 Hg4 67. Hxh5 Hxa4 68. Kc6 og svartur gafst upp. Í dag fer fram glæsilegt skákmót sem Taflfélag Snæfellsbæjar heldur til minningar um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason, en á sínum tíma efldu báðir þessir kappar verulega framgang skáklistarinnar í Ólafsvík. Mótið hefst kl. 13.00 og fer fram í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Tefldar verða átta umferðir þar sem fyrstu fjórar umferðirnar hafa tímamörkin 4+2 en næstu fjórar eru 10+5. Sjá nánari upplýsingar um mótið á skak.is.