Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góður gangur er um þessar mundir við byggingu íbúðahúsnæðis í Hafnarfirði. Í Hamraneshverfi má sjá fjölda húsa á byggingarstigi og sitt segir um stöðu mála hve vinnuvélar og kranar eru áberandi í umhverfinu þar. Að því er fram kemur á mæliborði á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru nú 1.062 íbúðir í byggingu í Hafnarfirði og nærri 90% af þeim eru í fjölbýli; margar 80-100 fermetrar að stærð.
Þétt og rifið
Hamranes er smám saman að öðlast heildstæðan svip, enda er uppbygging þar langt komin. Leikskóli þar er tilbúinn og í haust hefjast framkvæmdir við byggingu grunnskóla í hverfinu. Börn úr hverfinu hafa sótt nám í Hraunvalla- og Skarðshlíðarskóla en á haustdögum næsta árs verður fyrsti áfangi nýja skólahússins tekinn í notkun.
„Staðan í bænum er góð og við höfum ágætt svigrúm til að taka á móti þeim fjölbreytta hópi fólks sem vill setjast hér að,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði í samtali við Morgunblaðið. Hann tiltekur að í haust hefjist úthlutun á lóðum í nýjum hluta Áslandshverfis, þar sem gert er ráð fyrir um 100 eignum í sérbýli og rað- og parhúsum. Á næstu misserum hefjist svo framkvæmdir á þéttingarreitum á Óseyrar- og Hvaleyrarbraut. Þar og nærri Flensborgarhöfn verði lóðir fyrir samanlagt um 1.200 nýjar íbúðir. Í hverfinu Hraun vestur ofar í bænum sé svo gert ráð fyrir allt að 3.000 íbúðum. Þar eru framkvæmdir hafnar við Reykjavíkurveg 60-62; en þar er nú verið að rífa eldri hús og rýma fyrir nýjum.
Vaxandi eftirspurn
„Hraði uppbyggingar hér er alveg í takt við stöðu efnahagsmála hverju sinni. Strax þegar verðbólgan fór að síga niður og vextir að lækka fórum við í vaxandi mæli að fá fyrirspurnir um lóðir; það er fyrir íbúðir en ekki síður atvinnuhúsnæði. Raunar er nú svo komið að brjóta þarf ný lönd undir starfsemi fyrirtækja og þar höfum við tiltekið svæði á Hellnahrauni, vestan við núverandi atvinnusvæði, sem kemur til úthlutunar seinni part ársins,“ segir bæjarstjórinn.
Til þessa hefur Hafnarfjörður verið í þeirri eftirsóknarverðu stöðu að hafa þéttingarrými og nægt landrými fyrir nýbyggingar, sbr. að mikið hefur verið byggt á Völlum, Skarðshlíð og í Hamranesi frá aldamótum eða þar um bil. Næsta nýbyggingarsvæði verður í svonefndri Vatnshlíð, sem er milli Áslands og Hvaleyrarvatns og undirbúningur vegna landsnáms þar er hafinn. Bæjarstjórinn segir að einhver ár líði uns það hverfi verður fullbyggt, en þá verði komin upp sú staða að Hafnarfjörður hafi fyllt út í rammann hvað varðar ný byggingarsvæði.
„Með öðrum orðum sagt er senn búið að byggja á öllum lausum svæðum í bænum samkvæmt þeim viðmiðum sem gilda um útlínur og vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægt er því nú að endurskoða ákvæðin þar, svo færa megi út kvíarnar,“ segir Valdimar bæjarstjóri.