Junko Tabei
Junko Tabei
Þess var í gær minnst að 50 ár eru liðin frá því að hin japanska Junko Tabei kleif fyrst kvenna hið sögufræga fjall Everest, 16. maí árið 1975. Fjallið mikla teygir sig 8.849 metra upp í loftið. Nú hálfri öld síðar hafa konur farið nærri 1.000 sinnum upp á toppinn

Þess var í gær minnst að 50 ár eru liðin frá því að hin japanska Junko Tabei kleif fyrst kvenna hið sögufræga fjall Everest, 16. maí árið 1975. Fjallið mikla teygir sig 8.849 metra upp í loftið. Nú hálfri öld síðar hafa konur farið nærri 1.000 sinnum upp á toppinn. Karlar hafa hins vegar klifið fjallið nærri 12.000 sinnum. Sumir þessara klifurgarpa hafa náð toppi Everest oftar en einu sinni.

Þegar Tabei var að undirbúa leiðangur sinn og leita eftir styrkjum mætti henni ósjaldan mikil hindrun. Fáir voru þá reiðubúnir að aðstoða hana við áskorunina og töldu sumir þeirra konur ekki reiðubúnar í viðlíka leiðangur.

„Ég skil ekki af hverju karlmenn gera svona mikið mál út af Everest. Þetta er jú bara fjall,“ ritaði Tabei í dagbók sína á Everest.