ÍBV er komið í toppsæti 1. deildar kvenna í fótbolta eftir góða ferð í Hafnarfjörðinn í 3. umferðinni í gærkvöldi. Urðu lokatölur 6:0.
Nöfnurnar Allison Clark og Alisson Lowrey skoruðu tvö mörk hvor fyrir Eyjakonur og þær Embla Harðardóttir og Sandra Voitane skoruðu einnig.
Haukar, sem eru nýliðar í deildinni, eru með þrjú stig í áttunda sæti af tíu liðum.
Keflavík, sem var spáð toppsætinu af fyrirliðum, forráðamönnum og þjálfurum deildarinnar, vann sinn fyrsta sigur er liðið heimsótti Aftureldingu, sem var spáð botnsætinu.
Keflvíkingar þurftu að hafa fyrir sigrinum því Marem Ndiongue kom Aftureldingu yfir á 50. mínútu. Emma Starr jafnaði á 60. mínútu og Kamilla Huld Jónsdóttir skoraði sigurmarkið á lokamínútunni.
Spáin um Aftureldingu gæti ræst en liðið er án stiga eftir fjóra leiki og í neðsta sæti.