Mótmæli Íbúar á samstöðufundi.
Mótmæli Íbúar á samstöðufundi. — Morgunblaðið/Karítas
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Reykjavíkurborg á að falla frá hugmyndum um „ofurþéttingu“ í Grafarvogi, segir Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hún lagði fram tillögu þess efnis í borgarstjórn fyrir um mánuði að í stað þessarar þéttingar yrði…

Reykjavíkurborg á að falla frá hugmyndum um „ofurþéttingu“ í Grafarvogi, segir Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Hún lagði fram tillögu þess efnis í borgarstjórn fyrir um mánuði að í stað þessarar þéttingar yrði haldið áfram með skipulagshugmyndir í Gufunesi, út frá skipulagstillögu sem var samþykkt árið 2016 en hefur ekki verið unnið eftir. Aðspurð segir hún nýbyggingar í Gufunesi ekki samræmast umræddu skipulagi.

Blokkirnar við Jöfursbás séu of þétt byggðar og samræmist ekki þeim hugmyndum sem lagt var upp með varðandi uppbyggingu í Gufunesi. Árið 2022 hafi Íslenska gámastöðin t.d. átt að vera farin og uppbygging að vera löngu hafin á svæðinu.

„Í stað þess að halda áfram með þetta óbyggða svæði, eins og til stóð, þá bregður meirihlutinn í borginni á það ráð að leggja til þéttingarreiti í byggðum hverfum Grafarvogs. Það er fáránlegt á svæði eins og Grafarvogi, þar sem er fallegt umhverfi, að það eigi að þrengja svona að fólki og ræna það lífsgæðunum og lýðheilsunni.“ magnea@mbl.is