Dómur Brynjar var dæmdur fyrir brot gegn 15 barnungum stúlkum.
Dómur Brynjar var dæmdur fyrir brot gegn 15 barnungum stúlkum. — Morgunblaðið/Eggert
Héraðsdóm­ur Reykja­ness hef­ur dæmt Brynj­ar Joen­sen Creed í þriggja ára fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn 15 barn­ung­um stúlk­um. Þetta er ann­ar dóm­ur­inn sem Brynj­ar, sem er á sextugsaldri, hlýt­ur á rúm­lega ári, en í fyrra fékk hann…

Héraðsdóm­ur Reykja­ness hef­ur dæmt Brynj­ar Joen­sen Creed í þriggja ára fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn 15 barn­ung­um stúlk­um. Þetta er ann­ar dóm­ur­inn sem Brynj­ar, sem er á sextugsaldri, hlýt­ur á rúm­lega ári, en í fyrra fékk hann sjö ára dóm, einnig fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn ung­um stúlk­um.

Brynjar var meðal ann­ars sakaður um að hafa verið í kyn­ferðis­leg­um sam­skipt­um við ung­ar stúlk­ur, m.a. á Snapchat en fram kem­ur í dómi héraðsdóms að not­enda­nöfn flestra stúlkn­anna hafi verið með þeim hætti að Brynj­ari hafi ekki átt að geta dulist að hann stæði þar í sam­skipt­um við börn.

Héraðsdóm­ur seg­ir að brot Brynj­ars hafi verið fjöl­mörg og gróf. Jafn­framt að hátt­semi hans hafi verið til þess fall­in að valda stúlk­un­um veru­leg­um and­leg­um miska sem ætla megi að marki þær til framtíðar. Hann var enn frem­ur dæmd­ur til að greiða stúlk­un­um tæp­ar 18 millj­ón­ir í miska­bæt­ur.