Leiðtogi Ólíkt starfsbróður sínum í Rússlandi þá mætti Úkraínuforseti til Istanbúl. Þess í stað sendu Rússar „lágt setta“ sendinefnd til fundarins.
Leiðtogi Ólíkt starfsbróður sínum í Rússlandi þá mætti Úkraínuforseti til Istanbúl. Þess í stað sendu Rússar „lágt setta“ sendinefnd til fundarins. — AFP/Adem Altan
Vladimír Pútín Rússlandsforseti gerði „mikil mistök“ á Istanbúl-fundinum þegar ákveðið var að senda fyrir hönd Kremlverja „lágt setta“ sendinefnd til að ræða við Úkraínuforseta um skref í átt til friðar í árásarstríði Rússlands

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

Vladimír Pútín Rússlandsforseti gerði „mikil mistök“ á Istanbúl-fundinum þegar ákveðið var að senda fyrir hönd Kremlverja „lágt setta“ sendinefnd til að ræða við Úkraínuforseta um skref í átt til friðar í árásarstríði Rússlands. Rétt hefði verið og nauðsynlegt af Pútín að mæta á fundinn í eigin persónu. Hann hafi hins vegar kosið að halda sig heima fyrir í Kreml. Þetta segir Mark Rutte framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO).

„Boltinn er núna hjá Rússlandsforseta, á hans vallarhelmingi. Hann verður að taka virkan þátt og sanna að honum sé alvara um frið. Ég tel því ljóst að allur þrýstingur sé nú á Vladimír Pútín,“ segir Rutte og heldur áfram: „Pútín þekki ég ágætlega frá tíma mínum sem forsætisráðherra Hollands. Við eigum fjölda samtala og samninga að baki. Pútín þekkir eflaust stöðu sína og veit að hann er í vanda staddur. Sendinefndir Úkraínu og Bandaríkjanna stóðu hins vegar fyllilega undir væntingum.“

Vill enn sterkari aðgerðir

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir niðurstöður viðræðnanna vonbrigði og kallar eftir enn sterkari aðgerðum alþjóðasamfélagsins gegn Rússlandi. Þörf sé á hertum aðgerðum gegn bönkum landsins og orkufyrirtækjum. Ekki sé hægt að leyfa Rússum að brjóta áfram á Úkraínu.

„Hér skapaðist tækifæri til að stíga raunveruleg skref í átt til friðar, en Pútín var of hræddur til að mæta í eigin persónu til Tyrklands,“ segir Selenskí Úkraínuforseti.

Varnarmálaráðuneyti Úkraínu tilkynnti í gær að orrustuþota hersins, sem er af gerðinni F-16, hefði farist í aðgerðum gegn ómönnuðum loftförum Rússlandshers. Flugmaðurinn er sagður heill, hann náði að skjóta sér út úr þotunni áður en hún féll til jarðar.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að flugmaðurinn hafi grandað þremur loftförum í aðgerðinni og að hann hafi verið að undirbúa sókn gegn fjórða skotmarkinu þegar þotan varð skyndilega óflughæf. Ekki er vitað hvort þotan hafi verið skotin niður eða hvort hún hafi farist vegna tæknibilunar. Er þetta þriðja F-16 sem Úkraína missir.

Höf.: Kristján H. Johannessen