Laugardalur Myndin sýnir fyrirhugaða staðsetningu skólaþorpsins. Efst til vinstri má sjá Laugardalsvöll og þak aðalstúku vallarins. Neðarlega má sjá Reykjaveg og hægra megin er Engjavegur, sem liggur að Laugardalshöll.
Laugardalur Myndin sýnir fyrirhugaða staðsetningu skólaþorpsins. Efst til vinstri má sjá Laugardalsvöll og þak aðalstúku vallarins. Neðarlega má sjá Reykjaveg og hægra megin er Engjavegur, sem liggur að Laugardalshöll. — Teikning/Landslag
Undirbúningur að skólaþorpi á bílastæði Laugardalsvallar er í fullum gangi hjá Reykjavíkurborg. Búið er að ákveða að ganga til samninga um tvo verkþætti en nýtt deiliskipulag fyrir svæðið verður auglýst á næstunni

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Undirbúningur að skólaþorpi á bílastæði Laugardalsvallar er í fullum gangi hjá Reykjavíkurborg.

Búið er að ákveða að ganga til samninga um tvo verkþætti en nýtt deiliskipulag fyrir svæðið verður auglýst á næstunni. Samhliða verður auglýst breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.

Þessi áform vöktu litla hrifningu hjá Knattspyrnusambandi Íslands því alls fara 256 bílastæði undir skólaþorpið.

Skólaþorpið svonefnda er færanlegar kennslustofur sem verða í þyrpingum á bílastæðum suðvestur af Laugardalsvelli. Þær verða notaðar til kennslu nemenda á meðan viðhaldsframkvæmdir standa yfir á skólunum þremur í Laugardal, þ.e. Langholtsskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla.

Á fundi borgarráðs 15. maí sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugardals vegna skólaþorps við Reykjaveg, ásamt fylgiskjölum. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Sósíalistaflokks og Vinstri-grænna gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks kváðust í bókun harma að skólamál í Laugardal væru komin í það óefni að grunnskólabörn þyrftu nú að sinna sínu skyldubundna námi á bílastæði næstu 10-15 árin. Lýsa fulltrúarnir áhyggjum af öryggi skólabarna og leggja ríka áherslu á að gætt verði að umferðaröryggi á svæðinu enda ungir og óvarðir vegfarendur á ferð um það.

Deiliskipulagsbreyting þessi felst í því að áður skilgreindri lóð fyrir Ævintýraborg, tímabundið leikskólaúrræði Reykjavíkurborgar, er breytt í lóð fyrir skólaþorp, tímabundið grunnskólaúrræði Reykjavíkurborgar og/eða leikskólaúrræði.

Innkeyrslu verður lokað

Breytingin felst jafnframt í stækkun lóðarinnar út fyrir mörk núverandi bílastæða og yfir aðliggjandi stíg. Byggingarheimildir eru auknar og umferðarfyrirkomulagi breytt á bílastæðum milli Reykjavegar og Laugardalsvallar. Syðri innkeyrslu á stæðin frá Reykjavegi verður lokað.

Samgöngumat var unnið í tengslum við deiliskipulagsbreytinguna og er tekið mið af niðurstöðum þess.

Hjólandi og gangandi eiga greiða leið að lóðinni um núverandi aðliggjandi stíga og svæði sem tekið er frá fyrir hjólastíg.

Bílastæðahólfið norðan við hann verður notað sem bílastæði fyrir skólaþorpið og samnýtt með stæðum fyrir Laugardalsvöll.

Syðri aðkomuvegurinn verður nýttur sem sleppistæði og fyrir aðföng að skólaþorpinu.

Byggingarreitur á lóðinni er 7.420 fm á 8.675 fm lóð. Innan hans er heimilt að reisa úr einingum stakar byggingar í þyrpingu allt að 2.400 fm skólahúsnæðis í misstórum húsum.

Áætlað er að allt að 450 grunnskólabörn geti stundað nám í skólaþorpinu.

Staðsetning bygginga og stefna innan byggingarreits er frjáls. Gert er ráð fyrir einnar hæðar byggingum að hámarki fimm metra háum. Skólaþorpið getur notað aðliggjandi grassvæði austan lóðarinnar sem leiksvæði.

Nýlega voru opnuð tilboð í frágang lóðar skólaþorpsins í Laugardal og skiluðu sjö fyrirtæki inn tilboði. Verklok eru áætluð í maí 2026.

Innkaupa- og framkvæmdaráð hefur samþykkt að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, sem er Garðasmíði ehf., að fjárhæð 238.093.000 krónur með vsk. Var það tæplega 78% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 306,7 milljónir.

Lægstbjóðandi hefur staðist fjárhagsskoðun skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar og tæknilegt mat skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

Næstlægsta boðið áttu Sumargarðar ehf., 278,6 milljónir.

Í síðasta mánuði var greint frá því að borgin heðfi samþykkt að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Terra eininga ehf., í EES-útboði um færanlegar kennslustofur fyrir skólaþorpið. Samningsupphæðin var tæpar 500 milljónir með virðisaukaskatti.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson