„Veðrið var of gott til að sleppa þessu,“ segir Andri Týr Kristleifsson rakari og einn eigenda rakarastofunnar Herramanna í Kópavogi.
Í blíðviðrinu í gær gátu rakararnir ekki sætt sig við að þurfa að húka inni við störf sín og færðu rakarastólana út á stétt fyrir framan stofuna.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kíkti við sat Kristján Torfason í stólnum hjá Andra. Kristján er sonur stofnanda stofunnar og frændi Andra.
„Við höfum ekki gert þetta áður hérna en höfum þó prófað þetta þegar við höfum farið út á land. Viðskiptavinirnir tóku vel í þetta. Við klipptum heilmikið úti í dag, miklu meira en við höfðum gert ráð fyrir,“ segir Andri.