Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur náð samkomulagi við furstadæmið Abú Dabí um uppbyggingu á gríðaröflugu gagnaveri sem hraða á þróun gervigreindar. Verið mun að sama skapi stórauka áhrif Bandaríkjanna í þessum heimshluta og styrkja þau bandarísku fyrirtæki sem vinna hörðum höndum að aukinni tækni og þekkingu á þessu sviði. Helsti keppinautur Bandaríkjanna þegar kemur að þróun gervigreindar er Kína.
Howard Lutnick, viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Trumps, fagnar mjög samkomulaginu og segir það marka mikil tímamót. Bandaríkin séu nú skrefi nær því að leiða þróun gervigreindar á heimsvísu.
Til hliðar má sjá mynd af forsetanum hvar hann heldur á gestabók sem sýnir áritaða kveðju til Abú Dabí og undirskrift Trumps.