Blíðviðri og sólskin var um landið allt um helgina og þá blíðu nýtti fólk sér svo sannarlega til að lifa, leika og njóta. Þessir kátu og kröftugu kappar tóku hressilega syrpu með körfuboltann á Klambratúni í Reykjavík; sem á góðum degi er sannkallað …
Blíðviðri og sólskin var um landið allt um helgina og þá blíðu nýtti fólk sér svo sannarlega til að lifa, leika og njóta. Þessir kátu og kröftugu kappar tóku hressilega syrpu með körfuboltann á Klambratúni í Reykjavík; sem á góðum degi er sannkallað ævintýraland í borginni og staður til að gera margt skemmtilegt. Má því gera ráð fyrir að á helstu útivistarstöðum verði fjölmennt næstu daga, því veðurspáin er góð. Sól og blíða verður víðast hvar fram í miðja vikuna, en á fimmtudag er rigning komin í kortin.