Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti 8. maí deiliskipulagstillögu á Sigmundarstöðum sem tekur til áætlunar um að reisa mælimastur til vindrannsókna á Grjóthálsi. Ekki liggur fyrir beiðni um að reisa vindorkuver að svo komnu máli.
Deiliskipulagstillagan var auglýst á dögunum en fram kemur að athugasemdir hafi borist frá hagsmunaaðilum og við þeim verið brugðist eða þeim svarað.
Í fundargerð sveitarstjórnar, sem m.a. fjallar um afgreiðslu á tillögunni, kemur fram að um sé að ræða tímabundið leyfi til mælinga í tvö ár og eru áréttaðar skyldur málsaðila um að taka mælimastrið niður að þeim tíma loknum. Farið verður fram á tryggingu þess efnis áður en byggingarleyfi verður gefið út.
Ófýsilegur staður
Sigurður Guðmundsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð lagði fram bókun þess efnis að með samþykki fulltrúa flokksins á tillögunni sem heimilar uppsetningu mælimasturs tímabundið sé staðinn vörður um eignarrétt og athafnafrelsi jarðeigenda án langvarandi áhrifa á nágranna þeirra. Þá undirstrikar hann að í samþykkinu felist ekki með neinum hætti stuðningsyfirlýsing við nýtingu vindorku á Grjóthálsi, þvert á móti telji fulltrúar flokksins sýnileika vindmyllna og áhrif þeirra á nærumhverfið verða það mikil að staðsetningin verði mjög seint talin fýsileg.
Friðrik Aspelund fulltrúi Vinstri-grænna hafði áður lagt fram bókun er málið var afgreitt á fundi skipulags- og byggingarnefndar sveitarfélagsins, þar sem hann lýsir sig andvígan tillögunni. Í bókuninni segir hann um óþarfa rask að ræða sem hafi þann tilgang einan að fá fjárfesta til að leggja peninga í framkvæmd sem ólíklegt sé að verði nokkurn tíma af vegna eindreginnar andstöðu allra nágranna.
Samþykkt í annað sinn
Tillaga um deiliskipulag tengd mælimastrinu var fyrst samþykkt af sveitarstjórn í október á síðasta ári en Skipulagsstofnun taldi sig ekki geta tekið afstöðu til tillögunnar vegna óskýrra skilmála.
Stofnunin fann meðal annars að því að hámarkstímalengd mælimasturs og slóða og beindi því til sveitarfélagsins, að teknu tilliti til fjölda athugasemda sem borist höfðu m.a. frá hagsmunaaðilum á svæðinu, að setja um þetta skýra skilmála. Auk þess þyrfti skýra skilmála um frágang á svæðinu.
Úr varð að málið var tekið upp aftur og tillagan nú auglýst á nýjan leik.