Tveir létu lífið og nítján slösuðust þegar skipi mexíkóska sjóhersins var siglt á Brooklyn-brúna seint á laugardagskvöld. Skipið var á leiðinni til Íslands sem hluti af lokaáfanga nýútskrifaðra sjóliða í mexíkóska hernum. Skipið hafði lagt af stað frá Acapulco í Mexíkó í upphafi aprílmánaðar.
Rúmlega 200 manns voru um borð í skipinu þegar það sigldi á brúna. Vélarbilun varð í skipinu sem gerði það að verkum að það varð aflvana.
Þrjú möstur skipsins hrundu en engar alvarlegar skemmdir urðu á Brooklyn-brúnni. Henni var lokað eftir að slysið átti sér stað en var opnuð aftur skömmu síðar.
Á myndskeiðum á samfélagsmiðlum má sjá fjölda sjóliða hanga í möstrum skipsins rétt fyrir áreksturinn. Þar má jafnframt sjá að mikil skelfing greip um sig meðal viðstaddra þegar skipið rakst á brúna.
Skipið ber heitið „Chuauhtémoc“ en er einnig þekkt undir gælunafninu „riddari hafsins“. Það hefur í gegnum tíðina tekið reglulega þátt í alþjóðlegum siglingakeppnum fyrir hönd mexíkóska sjóhersins.