Stjarnan knúði fram oddaleik gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfuknattleik með því að vinna fjórða leik 91:86 í Garðabæ í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi þar sem Tindastóll var með forystuna lengi vel en Stjarnan kom glæsilega til baka

Stjarnan knúði fram oddaleik gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfuknattleik með því að vinna fjórða leik 91:86 í Garðabæ í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi þar sem Tindastóll var með forystuna lengi vel en Stjarnan kom glæsilega til baka. Staðan í einvíginu er því 2:2 og mætast liðin í oddaleik á Sauðárkróki næstkomandi miðvikudagskvöld. Þar kemur í ljós hvort Tindastóll verði Íslandsmeistari í annað sinn eða Stjarnan í fyrsta sinn. » 27