Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Sýn segir ekkert því til fyrirstöðu að íslenska ríkið útnefni Sýn til almannaþjónustuhlutverks og geri í framhaldinu samning við fyrirtækið um ríkisstuðning vegna þjónustuveitingar hliðstæðan þeim sem gerður hefur verið við TV2 í Noregi.
Þetta kemur fram í umsögn Sýnar við lagafrumvarp um stuðning til einkarekinna fjölmiðla.
TV2 er stærsta einkarekna sjónvarpsstöðin í Noregi. Hún heldur úti nokkrum sjónvarpsstöðvum og streymisveitu sem er áskriftarveita. Sýn vísar til þess að menntamálaráðuneyti Noregs hafi árið 2018 útnefnt TV2 með hlutverk í almannaþágu og í kjölfarið gert samning um ríkisstuðning vegna skuldbindandi þjónustuveitingar á daglegri fréttaþjónustu á landsvísu, vikulegrar tungumálakennslu til ungmenna og annars efnis fyrir ungt fólk og fyrstu sýningar á norskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Bendir Sýn á að fyrirtækið haldi úti þjónustu sambærilegri þeirri sem TV2 veitir gegn ríkisstuðningi og að án þjónustu fréttastofu fyrirtækisins væri eingöngu fréttastofa Rúv. starfandi á ljósvakamiðlum, sem væri afleitt fyrir lýðræðislega umræðu og nauðsynlegt aðhald fjölmiðla.
Vera kunni að nauðsynlegt sé að skjóta lagastoð undir fyrirkomulagið, en samkvæmt gildandi lögum er Rúv. eini fjölmiðillinn sem lögum samkvæmt hefur almannaþjónustuhlutverk.