Rússar hófu eina stærstu drónaárás á Úkraínu frá upphafi stríðsins aðfaranótt sunnudags. Rússar skutu 273 drónum sem hæfðu héruðin Dnipropetrovsk og Donetsk og höfuðborgina Kænugarð, þar sem ein kona er sögð hafa látið lífið og þrír særst.
Að sögn flughers Úkraínu tókst að skjóta niður hluta drónanna auk þess sem 128 drónar ollu ekki eyðileggingu.
Árásin var gerð aðeins degi áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður ætla ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Volodimír Selenskí Úkraínuforseta í von um að koma hreyfingu á friðarviðræður milli ríkjanna. Embættismenn í Úkraínu segja að árásirnar beri þess merki að Rússar hafi ekki áhuga á að binda enda á stríðið.
Í samtali við Reuters-fréttastofuna lýsti Natalía Píven, íbúi í Kænugarði, því hvernig hún varði sig í kjallara sínum á meðan drónaárásirnar gengu yfir áður en hún leitaði skjóls í loftvarnabyrgi. Konan sem bjó við hliðina á henni lét lífið í árásunum.
„Ég get ekki jafnað mig á þessu. Ég heyrði drónann fljúga beint að húsinu mínu,“ sagði Píven.
Samninganefndir Úkraínumanna og Rússa hittust á skammvinnum fundi í Istanbúl í Tyrklandi á föstudag til að ræða um mögulegt vopnahlé. Voru það fyrstu beinu friðarviðræðurnar á milli ríkjanna í meira en þrjú ár. Engin niðurstaða náðist í lok fundarins og var ekki boðað til nýs fundar í kjölfarið.
Eftir fundinn sagði Andrí Jermak, einn helsti ráðgjafi Selenskís, að friðarviðræðurnar væru aðeins sýndarmennska Pútíns. Hvorki Selenskí né Pútín voru viðstaddir fundinn og voru því litlar væntingar um árangur hans.