Sigling Þátttakendur í æfingunni hér á pöllum varðskipsins Þórs, sem þyrla frá Gæslunni flaug yfir. Verkefnin á æfingunni voru mjög fjölbreytt.
Sigling Þátttakendur í æfingunni hér á pöllum varðskipsins Þórs, sem þyrla frá Gæslunni flaug yfir. Verkefnin á æfingunni voru mjög fjölbreytt. — Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um 150 manns tóku þátt í viðamikilli sjóbjörgunaræfingu í Ísafjarðardjúpi nú á laugardaginn. Æfingin miðaði að því að bregðast við neyðarástandi um borð í farþegaskipi og kallaði á samhæfðar aðgerðir margra

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Um 150 manns tóku þátt í viðamikilli sjóbjörgunaræfingu í Ísafjarðardjúpi nú á laugardaginn. Æfingin miðaði að því að bregðast við neyðarástandi um borð í farþegaskipi og kallaði á samhæfðar aðgerðir margra. Þetta var jafnframt liður í þróun landsáætlunar um fjöldabjörgun á hafi, sem unnin er af Landhelgisgæslunni í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Áætlunin nær yfir hópslys á leitar- og björgunarsvæði Íslands umhverfis landið. Markmiðið með æfingunni var að greina styrkleika og veikleika og stuðla þannig að úrbótum.

Reynsla sem nýtist til að bæta áætlanir

„Úr þessari æfingu á Ísafirði tökum með okkur margvíslega reynslu sem nýtist til að bæta áætlanir,“ segir Anna Finnbogadóttir, verkefnisstjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar. Hún nefnir að fyrir tveimur árum hafi sambærileg æfing verið haldin á Faxaflóa. Allt sé þetta hluti af langtímaáætlun Landhelgisgæslu um reglulegar fjöldabjörgunaræfingar um allt land.“

Fjölmargir komu að æfingunni á Ísafirði auk Landhelgisgæslunnar. Þar má nefna almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögregluna á Vestfjörðum, björgunarsveitir og slökkvilið, Rauða krossinn, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og fleiri. Varðskipið Þór gegndi lykilhlutverki í æfingunni og líkti eftir farþegaskipi í neyð. Um borð voru sjálfboðaliðar sem léku farþega.

Raunverulegar aðstæður æfðar

Rýming skipsins fór fram með björgunarskipum, léttabátum og þyrlu og slökkvilið æfði dælingu úr skipinu. Þátttakendur voru fluttir í land á söfnunarsvæði slasaðra og þaðan í fjöldahjálparstöð, í aðstæðum sem líktust sem mest raunverulegum aðgerðum.

„Meðal markmiða var að æfa stjórnun, fjarskipti, talningu og skráningu þolenda – bæði á vettvangi og í landi. Fjöldabjörgun á hafi, og sérstaklega rýming farþegaskips, er flókið og krefjandi verkefni sem kallar á nákvæma samhæfingu og æfingu,“ segir Anna um inntak æfingarinnar.

Fleiri æfingar fyrirhugaðar

Öryggismál tengd skemmtiferðaskipum þykja vera sérstaklega mikilvæg í ljósi stærðar skipanna og fjölda farþega, segir Anna. Þar má nefna að stærsta skemmtiferðaskipið sem til Íslands kemur í ár, Majestic Princess, kemur til Ísafjarðar í sumar með allt að 5.900 manns um borð. Í fyllingu tímans er fyrirhugað að taka sambærilegar æfingar í öðrum höfnum á landinu þar sem skemmtiferðaskip koma helst.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson