Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Verð á kaffi hefur hækkað mikið frá áramótum. Dæmi eru um að einstaka vörutegundir hafi hækkað um tugi prósenta í matvöruverslunum.
Samkvæmt upplýsingum frá verðlagseftirliti ASÍ hefur verð á kaffi í fjórum stærstu matvöruverslunum landsins hækkað um 7,4% síðasta árið.
Þetta er þó aðeins meðaltal og ef rýnt er í upplýsingar á vef verðlagseftirlitsins má sjá hvernig verð hefur þróast á einstaka tegundum kaffis.
Þannig má til dæmis sjá að 400 gramma pakki af French Roast-baunum frá Te & kaffi hefur hækkað um 33% í verslunum Nettó á þessu ári. Í Bónus hefur pakki af rauðu Rúbín-kaffi hækkað um 19% og í Krónunni hefur Kvöldroði frá Kaffitári hækkað um 17% frá áramótum.
Miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði
Ekki sér enn fyrir endann á þessum verðhækkunum. Um síðustu mánaðamót hækkuðu margir birgjar verð og búast má við að þær hækkanir skili sér smám saman út í verðlagið á næstunni. Svo dæmi séu tekin hækkaði Te & kaffi verð um 15% og Coca Cola á Íslandi um allt að 7,8%.
„Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað um 19% frá áramótum og um 92% á síðustu 12 mánuðum, sem hefur haft bein áhrif á innkaupsverð til okkar. Því neyðumst við til að hækka verð á Costa og Barista Bros um 3-4 krónur á bolla, sem samsvarar 6,5-7,8% hækkun,“ sagði í tölvupósti Coca Cola á Íslandi til viðskiptavina sinna.
Þrjár hækkanir á hálfu ári
„Verðið á heimsmörkuðum er enn í hæstu hæðum. Það er sögulega hátt og ekki útlit fyrir annað en að þannig verði það alla vega út þetta ár og mögulega lengur,“ segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & kaffi, í samtali við Morgunblaðið.
Uppskerubrestur hefur orðið á stærstu ræktunarsvæðum kaffis og lagerstaða á hrákaffi í heiminum er sögulega lág að sögn Guðmundar. Síðustu mánuði hefur verið gengið á það sem til var af eldri uppskerum.
Hann segir að Te & kaffi hafi haldið að sér höndum með verðhækkanir meðan staðan var óljós. Þá hafi verðhækkanir frá birgjum dunið á fyrirtækinu og ekki hafi tekist að leiðrétta þær. Fyrirtækið hækkaði verð í desember síðastliðnum um 6% og aftur í mars um 8%. Um síðustu mánaðamót bættist þriðja verðhækkunin við og var hún upp á 15%.
„Innkaupsverð okkar er næstum því tvöfalt hærra en á síðasta ári. Það hafa bæst við hundruð milljóna króna í aukinn innkaupakostnað. Við getum ekki annað en hækkað verðið til að stemma stigu við þessu. Við verðum að geta staðið við skuldbindingar okkar gagnvart birgjum og halda rekstrinum á réttum kili.“