Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Ísraelsher boðaði í gær stórfelldan landhernað á Gasasvæðinu. Stuttu eftir að aðgerðirnar voru tilkynntar sendi herinn frá sér fyrirskipun um rýmingu á nokkrum hluta Gasasvæðisins þar sem árás væri yfirvofandi.
„Þetta er lokaviðvörun fyrir árás. Vegna eigin öryggis skuluð þið leita skjóls,“ sagði í skilaboðum hersins.
Að sögn ísraelska hersins er markmið hernaðaraðgerðanna að frelsa alla gísla og vinna bug á hryðjuverkasamtökunum Hamas.
Sagði herinn jafnframt að þeir hefðu í dag „útrýmt tugum hryðjuverkamanna og eyðilagt innviði“ þeirra.
Almannavarnir á Gasa greindu frá því í gær að tugir manna hefðu látið lífið í aðgerðum Ísraels og yfir 100 manns særst.
Tilkynning um aukinn hernað kom nokkrum klukkustundum eftir að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, gaf til kynna að samninganefnd Ísraels væri tilbúin til friðarviðræðna við Hamas, sem fara með stjórn á Gasa.
Lítill árangur í viðræðum samninganefnda um helgina
Samninganefndir Ísraels og Hamas hafa um helgina átt í óbeinum viðræðum um vopnahlé á Gasa. Viðræðurnar fara fram í Doha í Katar.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir heimildarmanni sínum, sem er sagður háttsettur innan Hamas, að litlar framfarir hafi verið í viðræðum helgarinnar.
Ein af kröfum Netanjahú til að koma á vopnahléi er að Hamas afvopnist og að allir gíslar í haldi samtakanna verði frelsaðir, nokkuð sem Hamas hefur ekki fallist á til þessa.
Talið er að 57 manns séu enn í haldi Hamas, þar af eru 34 taldir látnir.
Kröfur Hamas-samtakanna til vopnahlés eru m.a. að Ísraelsher yfirgefi Gasa og að flutningi hjálpargagna og mannúðaraðstoðar verði aftur hleypt inn á svæðið.
Netanjahú tilkynnti í gærkvöldi að „grunnmagni“ fæðu yrði hleypt aftur inn á Gasa til að koma í veg fyrir hungursneyð á svæðinu. Ísrael hefur takmarkað flæði hjálpargagna til Gasa undanfarna tvo mánuði.