Sex daga danshátíðin Dansdagar hefst í dag 19. maí og stendur til 24. maí. Boðið verður upp á danstíma og vinnusmiðjur, opinbera viðburði, síðdegisviðburði, opið svið, danseinvígi og margt fleira. Um er að ræða samstarfsverkefni Dansverkstæðisins og Íslenska dansflokksins

Sex daga danshátíðin Dansdagar hefst í dag 19. maí og stendur til 24. maí. Boðið verður upp á danstíma og vinnusmiðjur, opinbera viðburði, síðdegisviðburði, opið svið, danseinvígi og margt fleira. Um er að ræða samstarfsverkefni Dansverkstæðisins og Íslenska dansflokksins.

„Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á þjálfun í dansi þar sem bæði dansarar og áhugafólk geta tekið þátt í spennandi dagskrá alla vikuna,“ segir í tilkynningu. „Í þessari þriðju útgáfu Dansdaga er sjónum beint að samspili samtímadans og samfélagsdans – hvernig við getum skapað samtal milli ólíkra danssamfélaga á Íslandi og hvernig dans getur verið sameiningarafl.“ Frekari upplýsingar má finna á id.is.