Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Okkur er borgið til næstu ára,“ segir Margrét Jónsdóttir á Syðra-Velli í Flóa sem á og rekur Ullarverslunina Þingborg í Flóa, skammt fyrir austan Selfoss. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á dögunum seldi Flóahreppur gamla félagsheimilið Þingborg nýlega til Vegagerðarinnar. Þar kemur til að húsið er innan helgunarsvæðis breikkunar Suðurlandsvegar sem komin er á dagskrá. Ljóst er þó að allt að áratugur gæti liðið uns framkvæmdir hefjast og þangað til fær gamla húsið að standa.
„Viðbrögðin við fréttum um að verslunin þyrfti hugsanlega úr húsinu voru ótrúlega sterk. Slíkt segir þá að margir láta sig þessa starfsemi varða og slíkt er auðvitað mjög ánægjulegt,“ segir Margrét.
Gamla Þingborg er gamalt skólahús og félagsheimili, var byggð um 1930 og í notkun sem slíkt til 1990. Síðan þá hefur ullarvinnufólk haft aðstöðu í húsinu hvar einnig er sá verslunarrekstur sem Margrét hefur með höndum. Þar eru seldar vörur frá um 100 manns, prjónafólki víða um land. Margt er í boði, svo sem lopapeysur, teppi, húfur, vettlingar og fleira slíkt ágæti. Allar prjónavörur seldar þar eru prjónaðar úr sérvalinni lambsull sem er þvegin hjá Ístex á Blönduósi og unnin í lopa og band í Mosfellsbæ.
Sá vegarkafli sem nú stendur til að breikka er hringvegurinn, það er frá Selfossi austur að Skeiðavegamótum. Þetta er 13 km langur spotti, 2+1-vegur. Stór hluti af framkvæmdinni er breytingar á gatnamótum og fækkun vegtenginga heim að bæjum og byggðahverfum.