Nýr páfi var formlega settur í embætti í gær með hátíðlegri innsetningarathöfn á Péturstorginu í Róm. Yfir 200.000 manns söfnuðust saman á torginu til að fylgjast með innsetningunni. Mannfjöldinn fagnaði páfanum ákaft þegar hann kom á hinum svokallaða páfabíl.
Leó XIV., nýi páfinn, var kjörinn nýr páfi kaþólsku kirkjunnar
8. maí síðastliðinn. Hann er 69 ára að aldri og er frá Bandaríkjunum.
Leó fór um víðan völl í innsetningarpredikun sinni. Lýsti hann yfir áhyggjum sínum af stríðinu í Úkraínu en Vladimír Selenskí Úkraínuforseti var viðstaddur athöfnina og ræddi stuttlega við páfann að messu lokinni.
Kallaði Leó jafnframt eftir því að kirkjan yrði umbreytingarkraftur í heimi sundrungar og haturs.