Bergþór Ólason
Bergþór Ólason
Ég er svo heppinn að það er gaman í vinnunni flesta daga. Það er þó eitt sem nær mér svo til alltaf og það er þegar ráðherrar og þingmenn sem verja þingmál ráðherranna líta fram hjá augljósum afleiddum áhrifum frumvarpa sem rædd eru hverju sinni

Ég er svo heppinn að það er gaman í vinnunni flesta daga. Það er þó eitt sem nær mér svo til alltaf og það er þegar ráðherrar og þingmenn sem verja þingmál ráðherranna líta fram hjá augljósum afleiddum áhrifum frumvarpa sem rædd eru hverju sinni.

Afleiðing eins slíks var rædd í þinginu í gær, þegar innviðaráðherra mælti fyrir breytingu á lögum um leigubifreiðar, þar sem ráðherrann áformar að vinda ofan af hluta þeirra breytinga sem samþykktar voru 2022 og innleiddar vorið 2023.

Breytingarnar urðu upptakturinn að því sem við hefur blasað undanfarin misseri, sérstaklega við Keflavíkurflugvöll og í miðbæ Reykjavíkur um helgar.

Öll voru áhrifin fyrirsjáanleg. En þegar málið var rætt máttu þeir sem fyrir því töluðu ekki heyra minnst á afleidd áhrif þess.

En það er fleira. Við ræðum nú breytingu á veiðigjöldum og þurfum að sitja undir því að hartnær tvöföldun þeirra hafi engin áhrif á sveitarfélög. Hvernig er það rökstutt? Jú, með því að sveitarfélögin borgi veiðigjöldin ekki sjálf!

Á sama tíma rekur vel á þriðja tug sjávarútvegssveitarfélaga upp harmakvein vegna frumvarps atvinnuvegaráðherra enda áhrifin þeim augljós og alvarleg.

Útlendingalöggjöfin er enn annað svona mál, þar sem afleiddu áhrifin eru gríðarleg en að fullu fram hjá þeim litið við setningu laganna í júní 2016.

Júní getur verið hættulegur.

Þá langar suma þingmenn út í góða veðrið og mótstaðan gagnvart vondum málum á það til að minnka.

„Er ekki bara best að láta þá stjórnarliða sitja uppi með skömmina af þessu vonda máli?“ getur verið freistandi réttlæting.

Jafnlaunavottunin, sem er ein alundarlegasta afgreiðsla þingmáls sem menn muna eftir, var kláruð í júní 2017. Illu heilli.

Nú styttist vonandi í að undið verði ofan af þeirri dýru erindisleysu til samræmis við þingsályktunartillögu þingflokks Miðflokksins frá 2023 og þingmál Diljár Mistar Einarsdóttur frá 2024 og 2025.

Af hverju nefni ég þessi atriði hér í pistli?

Jú, senn líður að lokum fyrsta þings þessa kjörtímabils. Veðrið er gott og freistingarnar margar.

Það er þá sem mest ríður á að standa vaktina gagnvart vondum málum sem valkyrjurnar vilja ná í gegn á lokametrunum.

Mesta tjónið verður nefnilega oftast í júní.

Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins. bergthorola@althingi.is

Höf.: Bergþór Ólason