Aukin sala Kjötsalar landsins eru hæstánægðir með sölu á kjöti undanfarið en hún hefur aukist með góða veðrinu.
Aukin sala Kjötsalar landsins eru hæstánægðir með sölu á kjöti undanfarið en hún hefur aukist með góða veðrinu. — Morgunblaðið/Hákon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Framleiðendur og seljendur á kjöti og ís eru kampakátir eftir sumarblíðuna undanfarið. Með hækkandi hita og mikilli sól seljast þessar vörur mjög vel, eins og pylsur, hamborgarar, ís í brauði og bragðarefir

Helga Kjaran Birgisdóttir

helgakb@mbl.is

Framleiðendur og seljendur á kjöti og ís eru kampakátir eftir sumarblíðuna undanfarið. Með hækkandi hita og mikilli sól seljast þessar vörur mjög vel, eins og pylsur, hamborgarar, ís í brauði og bragðarefir.

Gunnlaugur Eiðsson aðstoðarforstjóri Kjarnafæðis segir við Morgunblaðið að sala á grillmat hafi rokið upp síðustu daga og vikur, sem hægt sé að rekja til góða veðursins.

„Það er í eðli okkar að þegar okkur líður vel, og það er gaman, gerum við frekar vel við okkur. Það átti vel við núna,“ segir Gunnlaugur. Spurður hvort veðrið hafi augljós áhrif á sölu kjötvara svarar hann því játandi og segir það skipta miklu máli.

„Við sáum það bara í fyrra þegar sumarið var lélegt eiginlega alls staðar á landinu, þá var verulegt sölufall hjá okkur. Það má segja að þessi mikla sala sé óvenjuleg á þessum tíma en það tengist veðrinu að sjálfsögðu, þetta er meiri júlístemning,“ segir hann.

Einnig var rætt við Jón Örn Stefánsson eiganda Kjötkompanís sem sagði að það gæti munað helmingi á sölunni þegar veðrið væri gott.

„Við bárum saman sölutölur núna og frá sama tíma í fyrra og okkur brá bara, það er alveg skuggalegur munur,“ segir Jón og telur kjötsalana eiga blíðviðrið inni eftir slakt síðasta sumar.

„Við vildum hafa þetta svona daglega. Við stólum yfirleitt á nokkra sólardaga í mánuði. Í fyrra fengum við þá ekki einu sinni og hafði það áhrif á afkomu síðasta árs,“ bætir Jón við. Hjá Kjötkompaníinu voru svonefnt lambakonfekt og nautalund í trufflu vinsælustu vörurnar en almennt rjúka hamborgararnir út þegar sólin skín.

Ísinn alltaf vinsæll

Ásamt kjöti er ís vinsæl vara þegar veðrið er gott. Ísbúðin Háaleiti er staðsett í miðbæ Reykjavíkur og taka starfsmenn hennar eftir að viðskiptavinum fjölgar þegar veðrið er betra. Ísinn er samt sem áður vinsæll allan ársins hring þó að salan sé meiri á sumrin en á veturna. Íslendingar fá sér ís þó að það sé snjór og kalt úti en gera meira af því þegar það er sól og gott veður.

Fólk á öllum aldri sækir í ísbúðina og enginn einn aldurshópur er meira áberandi en annar.

Það getur þó verið munur á pöntunum eftir því hvort viðskiptavinur er af eldri kynslóðinni eða þeirri yngri. Algengara er að eldra fólk fái sér ís í brauðformi en að ungmenni fái sér frekar bragðaref. Að sögn starfsmanns er bragðarefur vinsælasta pöntunin.

Nú þegar hæðin sem hefur verið yfir landinu hefur hörfað til austurs og lofthiti fer lækkandi má e.t.v. búast við minni sölu en sölumenn halda í vonina um gott og sólríkt sumar.

Höf.: Helga Kjaran Birgisdóttir