Sigmar Guðmundsson
Sigmar Guðmundsson
Traust er verðmætasti gjaldmiðill stjórnmálanna. Það tekur tíma að byggja það upp en svo getur það glatast á einu augabragði. Þess vegna er svo mikilvægt að fara vel með það. Undanfarin misseri höfum við séð með skýrum hætti hve mikilvægt traustið er

Traust er verðmætasti gjaldmiðill stjórnmálanna. Það tekur tíma að byggja það upp en svo getur það glatast á einu augabragði. Þess vegna er svo mikilvægt að fara vel með það.

Undanfarin misseri höfum við séð með skýrum hætti hve mikilvægt traustið er. Salan á Íslandsbanka var framkvæmd eftir opnu, faglegu ferli þar sem reglurnar voru skýrar frá fyrsta degi. Þátttaka almennings var meiri en nokkru sinni og verðið hagstætt. Ríkið fékk sanngjarna greiðslu, almenningur tækifæri til að fjárfesta og traust var endurvakið á sölu ríkiseigna. Þetta er alger viðsnúningur frá því vantrausti sem einkenndi síðustu ríkisstjórn. Þessi viðsnúningur er ekki sjálfgefinn. Hann er til kominn vegna vinnusemi og festu Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar í heild.

Nú hafa stýrivextir verið lækkaðir fimmta skiptið í röð. Þar er traust einnig lykilatriði. Traust Seðlabankans á áætlun stjórnvalda um aðhald í ríkisfjármálum og traust á innlendum fjármálastofnunum, sem skilar sér í lægra álagi og betri kjörum fyrir heimili og fyrirtæki. Lægri vextir skapa líka meira svigrúm til fjárfestinga. Hvort tveggja er lykilforsenda verðmætasköpunar um allt land.

Þessu til viðbótar verða veiðigjöld leiðrétt á yfirstandandi þingi. Þannig tryggjum við sanngjarna rentu fyrir sameiginlega auðlind þjóðarinnar, en komum um leið til móts við smærri fyrirtæki og sveitarfélög með ríflegu frítekjumarki. Auknar tekjur af leiðréttu veiðigjaldi verða að sjálfsögðu notaðar í nauðsynlega innviðauppbyggingu um allt land. Þannig vindum við ofan af því ófremdarástandi og vantrausti sem síðasta ríkisstjórn skildi eftir sig, meðal annars í vegakerfinu.

Það skiptir máli hver situr í fjármálaráðuneytinu. Viðreisn hefur tekið ríkisfjármálin föstum tökum frá fyrsta degi og þannig munum við áfram vinna. Í þágu fólksins í landinu. Til viðbótar við vel heppnaða bankasölu og aga í ríkisrekstri hefur nýtt frumvarp um stöðugleikareglu verið lagt fram á þingi. Það styður við efnahagslegt jafnvægi, bæði þegar vel árar en líka þegar á móti blæs. Ríkisfjármálin eiga nefnilega að vinna gegn kollsteypum, ekki ýta undir þær.

Við höfum þegar sýnt að stefna Viðreisnar í efnahagsmálum kristallast í einni spurningu: Getur almenningur treyst því að stjórnvöld vinni í þágu almennings? Svarið birtist í verkum okkar. Við munum halda áfram að byggja upp þetta traust. Efla tiltrú almennings á öllu því sem við eigum saman. Traust er ekki eitthvert innantómt orð; traust snýst um að fólkið í landinu finni með áþreifanlegum hætti að ríkisstjórn með Viðreisn innanborðs geri Ísland sterkara, sanngjarnara og frjálsara.

Við erum rétt að byrja.

Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. sigmar.gudmundsson@althingi.is

Höf.: Sigmar Guðmundsson