— AFP/Maxar Technologies
Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu sagði í gær að glæpur hefði verið framinn þegar nýjasta herskip norðurkóreska flotans eyðilagðist við sjósetningu þess. Ríkisfjölmiðlar í landinu sögðu í gær að „alvarlegt slys“ hefði átt sér stað í…

Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu sagði í gær að glæpur hefði verið framinn þegar nýjasta herskip norðurkóreska flotans eyðilagðist við sjósetningu þess. Ríkisfjölmiðlar í landinu sögðu í gær að „alvarlegt slys“ hefði átt sér stað í hafnarborginni Chongjin þegar skipið var sjósett á miðvikudaginn, og hefði botn herskipsins kramist saman. Fór það á hliðina og liggur þannig í höfninni.

Kim, sem var viðstaddur sjósetninguna, sagði að „algjört kæruleysi“ hefði valdið slysinu, og að þeir embættismenn sem bæru ábyrgð á því myndu þurfa að sæta þeirri ábyrgð á flokksþingi norðurkóreska kommúnistaflokksins í næsta mánuði.

Suðurkóreski herinn sagði í gær að leyniþjónustur Bandaríkjanna og Suður-Kóreumanna teldu að skipið hefði verið sjósett „á hlið“, þ.e. flutt með krönum út í höfnina en ekki látið renna niður ramp líkt og tíðkast í Suður-Kóreu.

Talið er að skipið sé sömu gerðar og tundurspillirinn Choe Hyon, sem Norður-Kóreumenn sjósettu í síðasta mánuði. Segja þeir að skipið sé búið „hinum öflugustu vopnum“ og hefur her Suður-Kóreu m.a. velt upp þeim möguleika að það geti borið skammdrægar eldflaugar með kjarnaoddum.