Óskar Bergsson
Agnar Már Másson
Björn Axelsson skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur verið leystur frá störfum eftir að borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra um útfærslu á nýju stjórnskipulagi eigna- og viðhaldsstjórnunar og skipulags- og byggingarferla. Verða stöður byggingar- og skipulagsfulltrúa sameinaðar í eina. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins tekur Brynjar Þór Jónasson byggingarfulltrúi við sameinaða embættinu. Þá hefur Birni verið boðið starf á öðru sviði borgarinnar.
Tillaga borgarstjóra var unnin af sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, borgarritara og sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs. Aukin skilvirkni og sveigjanleiki sem og bætt þjónusta, áhersla á áhættustýringu og aukið kostnaðareftirlit var haft að leiðarljósi. Ávinningur felst m.a. í styttri boðleiðum, betri þjónustu og aukinni framlegð.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir í samtali við Morgunblaðið að græna gímaldið, vöruskemman við Álfabakka í Breiðholti, hafi ekki verið ástæða þess að Björn var leystur frá störfum, en vinnubrögð hans hafa verið gagnrýnd að undanförnu eftir að bygging vöruhússins komst í hámæli. Í greinargerðum lögmanns Búseta, sem lagðar hafa verið fram bæði til Reykjavíkurborgar og úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, eru fjölmörg atriði talin upp er snúa að mistökum sem gerð voru við breytingu á skipulagi og útgáfu byggingarleyfis.
Heiða segir að borgin vilji veita uppbyggingaraðilum og íbúum, sem vilja byggja eða breyta húsum sínum, betri þjónustu. Hún tekur einnig fram að „mistök“ á borð við græna gímaldið megi ekki endurtaka sig og hyggst setja skýrari leiðbeiningar í deiliskipulag til að koma í veg fyrir það. Kjötvinnslan sé „ekki Reykjavíkurborg til sóma“ og borgin leiti enn lausna í deilum íbúa á svæðinu.
Hvað framtíð vöruskemmunnar varðar segir Heiða að borgin sé enn að leita lausna milli deiluaðila, þ.e. Búseta og uppbyggingaraðila. „Það er auðvitað okkar hlutverk að miðla málum og leita lausna í borginni,“ segir hún. „En mér finnst mikilvægt að taka af skarið, mikilvægt að við séum meirihluti sem þorir að breyta og bregðast við ef eitthvað er ekki eins og best verður á kosið.“